fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Fjögur börn niður í 11 ára ákærð fyrir að berja mann til bana

Pressan
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 21:30

Hinn látni, Rony Alonzo

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjögur börn, 11 og 12 ára, hafa verið ákærð fyrir morð og samsæri um að fremja meiriháttar líkamsárás, í tengslum við lát manns sem barinn var til bana þann 19. janúar. Atburðurinn var í borginni Providence á Rhode Island.

Hinn látni hét Rony Alonzo og var 51 árs gamall.

Vitni greindu lögreglu frá því að hafa séð mörg ungmenni ráðast á mann, sparka hann niður og sparka í hann og kýla áður en þau yfirgáfu vettvanginn.

Samkvæmt heimildum játuðu börnin sök í lögregluyfirheyrslum. Rhode Island er eitt af 23 ríkjum Bandaríkjanna þar sem engin aldursmörk eru á sakhæfi og réttað er yfir börnum eins og fullorðnum fyrir dómstólum.

Lögregla hefur ekki gefið upp ástæður fyrir árásinni. En systir hins látna segir við fjölmiðla: „Hann var maður sem angraði engan. Hann leitaði ekki uppi vandræði, hann hélt sig fjarri vandamálum.“

Rony Alonzo er sagður hafa verið rólyndismaður en hann flutti til Bandaríkjanna frá Guatemala fyrir 30 árum. Fjölskylda hans hefur sett upp stuðningssíðu á GoFundMe til að standa straum af útfararkostnaði.

Nánar má lesa um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu
Pressan
Í gær

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu