
Jacqueline Durand var 22 ára háskólanemi við University of Texas í Dallas þegar tveir hundar réðust á hana í desember árið 2021. Hún hafði verið ráðin til að passa þýskan fjárhund og pit bull hund á heimili eigenda þeirra. Samkvæmt frásögn hennar hafði hún hitt hundana áður og talið þá örugga, en árásin hófst um leið og hún gekk inn í húsið.
DV fjallaði meðal annars um þetta óhugnanlega mál í mars 2023, en í umfjölluninni kom fram að hún hefði verið bitin yfir 800 sinnum. Alvarlegasti skaðinn varð á andliti hennar og missti hún meðal annars eyru, nef og varir og varð fyrir miklum skaða á kjálka.
Sjá einnig: Varð fyrir hryllilegri árás tveggja hunda – Hefur gengist undir 18 aðgerðir til að endurbyggja andlit sitt
Fjáröflunarsíða var hrundið af stað skömmu eftir árásina til að standa straum af kostnaði við umfangsmiklar lýtaaðgerðir og endurhæfingu. Hún hefur síðan gengist undir fjölda skurðaðgerða og gekkst hún nýlega undir sína þrítugustu aðgerð.
Í myndbandi sem hún birti á YouTube í síðasta mánuði rifjaði Durand upp fjögurra ára afmæli árásarinnar og sagði tímamótin bæði tilfinningaþrungin og táknræn. Hún sagðist afar þakklát fyrir að hafa lifað árásina af og fyrir þá persónu sem hún hefði orðið í kjölfarið.
„Ég er andlega sterkari en ég hef nokkru sinni verið, einfaldlega vegna þess að ég hef þurft að yfirstíga svo margt,“ sagði hún í myndbandinu. Hún bætti við að síðasta ár hefði fært bæði erfiðar og jákvæðar breytingar, en að þakklæti fyrir að vera á lífi væri það sem stæði upp úr.
Durand sagði fyrstu afmæli árásarinnar hafa reynst henni mjög þung, þar sem hún festist oft í hugsunum um atburðinn. Með tímanum hafi hún þó breytt nálgun sinni og einbeitt sér frekar að því að umgangast fjölskyldu og vini og minna sig á að hún væri, þrátt fyrir allt, á lífi.
Að lokum þakkaði Durand þeim sem hefðu stutt hana undanfarin ár og hvatti fylgjendur sína til að muna að þeir væru ekki einir, jafnvel þótt einmanaleiki gæti stundum gert vart við sig. Hún sagðist vilja vera öðrum til stuðnings líkt og hún hefði sjálf notið stuðnings á sinni vegferð.