fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Héldu dularfullum veikindum leyndum fyrir vinum sínum

Pressan
Sunnudaginn 1. febrúar 2026 17:30

Catherine O´Hara

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Catherine O’Hara og eiginmaður hennar, Bo Welch, munu hafa haldið dularfullum veikindum hennar fyrir sig áður en hún lést.

O’Hara lést á föstudaginn, 71 árs að aldri. „Afkastamikil margverðlaunuð leikkona, rithöfundur og grínisti Catherine O’Hara lést í dag á heimili sínu í Los Angeles eftir stutt veikindi,“ kom fra í  yfirlýsingu.

Slökkvilið Los Angeles brást við útkalli klukkan 4:48 að morgni að heimili O’Hara. Leikkonan var flutt á sjúkrahús í „alvarlegu“ ástandi.

Dánarorsök hefur ekki enn verið gefin upp, en samkvæmt hljóðupptöku frá neyðarlínunni sem fjölmiðlar hafa greint frá átti O´hara í „öndunarerfiðleikum“ síðustu stundirnar.

Daily Mail greinir frá að Welch kunni að hafa vitað hvað var í vændum en margir þeirra sem stóðu O’Hara næst voru ekki upplýstir um ástand hennar á síðustu dögum hennar. Greindi Daily Mail frá því á laugardag að sumir vinir hennar hefðu verið í algjöru áfalli eftir andlát leikkonunnar.


O’Hara þótti afar grönn í síðasta skipti sem hún sást opinberlega, á Emmy-verðlaunahátíðinni í september síðastliðnum.Hún var fjarverandi á Golden Globes-verðlaunahátíðinni, sem haldin var í janúar, þrátt fyrir að vera tilnefnd til verðlauna.

O’Hara átti að taka upp aðra þáttaröð af sjónvarpsþáttunum The Studio eftir Seth Rogen, en hún hætti við aðeins nokkrum dögum fyrir andlát sitt. Mun handriti þáttanna hafa verið breytt til að einbeita sér að senum án persónu hennar meðan O´Hara tækist á við persónuleg mál.

„Það var ekki almennt vitað að hún væri að glíma við nein heilsufarsleg eða alvarleg vandamál,“ sagði heimildarmaður við Daily Mail.

Eftir andlát O’Hara deildu fjöldi frægra einstaklinga og leikara virðingu sinni til hinnar  ástkæru leikkonu og Golden Globe og Emmy verðlaunahafa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Í gær

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum
Pressan
Í gær

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir
Pressan
Í gær

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar