fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Bandarískir TikTok-notendur segja miðilinn ritskoða færslur og skilaboð sem tengjast Epstein og ICE

Pressan
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

TikTok hefur tekið breytingum í Bandaríkjunum undanfarna viku eftir að eignarhaldið færðist yfir til bandarískra fjárfesta. Notendur hafa kvartað sáran yfir breytingunum sem meðal annars felast í því að forsíða notenda á TikTok sýnir ekki lengur sama efni og áður. Telja notendur að bandaríska algrímið sé ekki eins gott og það sem var áður. Margir höfðu þjálfað algrími miðilsins árum saman til að fá sem besta upplifun á miðilinum og fengu því áfall um helgina þegar þeir sáu ekkert sem tengdist áhugamálum þeirra heldur aðeins fullt af lélegum myndböndum sem eru framleidd af gervigreind og annað ruslefni.

Notendur ráku svo upp stór augu þegar þeir reyndu að ræða um málefni níðingsins Epsteins í gegnum spjall miðilsins. TikTok neitaði að senda skilaboð ef þau minntust á Epstein. Aðrir notendur gátu svo hvorki leitað að myndböndum sem fjalla um tolla- og innflytjendaeftirlitið ICE eða birt sín eigin.

TikTok US segir að um bilun hafi verið að ræða og neitar því að beita ritskoðun. Fyrirtækið sé að kanna hvers vegna skilaboð með nafni Epsteins urðu til þess að notendur fengu villumeldingu.

Ríkisstjóri Kaliforníu, Gavin Newsom, segist hafa fengið ábendingar um að TikTok sé nú að bæla niður myndbönd þar sem forsetinn, Donald Trump, er gagnrýndur. David Leavitt, sjálfstæður blaðamaður, segir að miðillinn sé nú að ritskoða efni sem er neikvætt í garð forsetans og ICE. Sýndi hann skjáskot af sinni eigin TikTok-síðu máli sínu til stuðnings en þar hafði hann fengið skilaboð frá TikTok um að myndbandið væri óhæft til dreifingar.

TikTok US segir að meiriháttar bilun hafi átt sér stað um helgina sem sé enn að draga dilk á eftir sér. Unnið sé hörðum höndum að viðgerð og eru notendur beðnir um að sýna biðlund. Margir eru uggandi og hafa nú losað sig við forritið og leitað á önnur mið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu