fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Játning í spjallþætti endaði með harmleik – Upplifði djúpa skömm

Pressan
Mánudaginn 26. janúar 2026 06:00

Scott til vinstri og Jonathan til hægri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í mars árið 1995 féllst hinn 24 ára gamli Jonathan Schmitz á að koma í bandaríska spjallþáttinn The Jenny Jones Show. Þættirnir voru sýndir á árunum 1991 til 2003 og nutu töluverðra vinsælda, enda snerust þeir gjarnan um leyndarmál, játningar og ástarmál venjulegs fólks.

Jonathan fékk boð í þáttinn undir því yfirskini að þar myndi „óvæntur aðdáandi“ hans mæta og opinbera hrifningu sína á honum. Hann fékk ekki að vita neitt meira, bara að aðdáandinn gæti verið kvenkyns eða karlkyns.

Keypti sér haglabyssu

Þegar í settið var komið mætti félagi hans, hinn 32 ára gamli Scott Amedure, og sagðist vera skotinn í honum. Framleiðendum þáttarins var kunnugt um að Jonathan væri gagnkynhneigður og er óhætt að segja að játning félaga hans hafi komið honum í opna skjöldu.

Á sama tíma hlógu áhorfendur í salnum og klöppuðu, á meðan Jonathan varð vandræðalegur á svipinn, hló taugaóstyrkt og sagðist vera gagnkynhneigður.

Þremur dögum eftir að þátturinn var tekinn upp keypti Jonathan sér haglabyssu, ók rakleitt að heimili Scotts og skaut hann tveimur skotum í brjóstkassann. Scott lést samstundis en Jonathan ók á næstu bensínstöð, hringdi þar í neyðarlínuna og játaði að hafa framið morð.

Við yfirheyrslur sagði hann að hin niðurlægjandi reynsla í þættinum hafi vakið hjá honum svo mikla skömm að hann ákvað að svipta Scott lífi. Jonathan þótti þrátt fyrir það ekki eiga sér miklar málsbætur og var hann ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu.

 

Sleppt úr fangelsi 2017

Árið 1996 var hann dæmdur í 25 til 50 ára fangelsi eftir að hann var sakfelldur fyrir morð af annarri gráðu. Dómurinn var síðar ógiltur á tæknilegum forsendum en árið 1999 féll aftur sami dómur. Jonathan sat í fangelsi í 22 ár og var sleppt úr fangelsi á reynslulausn árið 2017.

Bandaríski vefmiðilinn People rifjaði upp þetta mál á dögunum, en fjallað er um málið og fleiri sambærileg í heimildaþáttaröðinni Dirty Talk: When Daytime Talk Shows Ruled TV sem frumsýnt var á dögunum.

Þátturinn umræddi fór aldrei í loftið en upptakan var þó notuð við réttarhöld málsins. Þáttastjórnandinn, Jenny Jones, bar meðal ananrs vitni en sagðist hafa lítið að segja um málið. Markmiðið hafi alls ekki verið að niðurlægja Jonathan. „Þetta var ekki Jenny Jones-morðið. Þetta var Jonathan Schmitz-morðið,” sagði hún við People árið 1999.

Þættirnir luku göngu sinni árið 2003 og síðan þá hefur Jenny einkum einbeitt sér að matreiðsluþáttum í sjónvarpi. Fjölskylda Scotts höfðaði mál gegn framleiðendum þáttarins, þar á meðal Warner Bros, en kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að þeir gætu ekki borið ábyrgð á því hvernig fór.

Frank Amedure, bróðir Scotts, sagði í viðtali við People árið 2017, um það leyti sem Jonathan var veitt reynslulausn, að hann væri ósáttur við að hann væri nú laus úr fangelsi.

„Þetta væri kannski auðveldara ef Jonathan væri gamall og gráhærður maður, en hann er enn tiltölulega ungur, 47 ára, og á langan tíma eftir ólifaðan. Bróðir minn aftur á móti er ekki svo heppinn.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér