fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Kíktu í myndavélina og trúðu ekki eigin augum þegar þau sáu hvað sendillinn gerði

Pressan
Föstudaginn 23. janúar 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölskylda ein í bænum Elland í Jórvíkurskíri á Englandi er í sárum eftir að hún sá hvað sendill frá Amazon gerði fyrir utan heimili hennar á sunnudag.

Carl Crowther hafði brugðið sér af bæ ásamt fjölskyldu sinni og á sama tíma kom sendillinn með sendingu að húsi þeirra. Pakkinn var fyrir utan útidyrnar þegar þau komu heim, en það vakti athygli þeirra að heimiliskötturinn, Nora, var hvergi sjáanlegur sem þótti óvanalegt.

Carl ákvað að athuga hvort hann fyndi vísbendingar um Noru á eftirlitsmyndavél sem er á dyrabjöllunni við útidyrnar og sá hann þá sendilinn koma með pakkann. En þegar sendillinn yfirgaf svæðið sást hann taka Noru upp og ganga í burtu með hana. Ekkert spurðist til Noru þar til í gær að Carl tilkynnti að hún væri komin aftur heim.

Carl sagði við breska fjölmiðla í vikunni að þar sem Nora væri á lyfjum vegna hjartavandamála hefði hann miklar áhyggjur af henni.

„Þetta er algjörlega ógeðslegt,“ sagði Carl og bætti við að á myndavélinni hafi sendillinn sést greinilega taka Noru upp og ganga í burtu með hana. Gagnrýndi hann einnig forsvarsmenn Amazon og sagði að þeir hefðu veirð lítt hjálplegir í málinu.

„Ég hef sent þeim tölvupóst og svarið þeirra var eiginlega viðbjóðslegt þar sem spurt var hvaða fjárhagslegt verðgildi við myndum setja á köttinn. Hvernig er hægt að setja peningalegt verðgildi á gæludýr einhvers?“

Talið er að sendillinn hafi unnið fyrir fyrirtæki sem þjónustar Amazon á svæðinu. Daily Mail greindi frá því í gær að Nora væri aftur komin í hendur eigenda sinna, en rannsókn málsins stendur yfir og hefur lögregla ekki veitt frekari upplýsingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér