fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Bandarískur þingmaður vill opinbera aftöku á grunuðum morðingja

Pressan
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 06:30

Tyler James Robinson er grunaður um morðið á Charlie Kirk

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski þingmaðurinn Mike Lee hefur kallað eftir því að opinber aftaka fari fram á Tyler Robinson, sem grunaður er um morðið á áhrifavaldinum og íhaldsmanninum Charlie Kirk.

Mike er öldungadeildarþingmaður Repúblikana fyrir Utah-ríki og hefur hann gegnt þingmennsku frá árinu 2011.

„Takið Tyler Robinson af lífi. Opinberlega,“ skrifaði hann í færslu á X.

Lee lét ummælin falla eftir að ekkja Kirk, Erika Kirk, lagði fram dómsgögn á mánudag þar sem hún krafðist skjótrar málsmeðferðar og sakaði verjendur Tylers um að reyna að tefja málið.

Þetta er í annað sinn sem öldungadeildarþingmaðurinn kallar eftir því að Robinson verði tekinn af lífi opinberlega.

„Tyler Robinson tók Charlie Kirk af lífi opinberlega,“ skrifaði Lee í svipaðri færslu á X á föstudag. „Tyler Robinson ætti að vera tekinn af lífi opinberlega.“

Tyler hefur enn ekki játað eða neitað sök í málinu, en saksóknarar hafa þó gefið til kynna að þeir muni krefjast dauðarefsingar verði hann sakfelldur.

Litlar líkur eru þó á því að Mike Lee verði að ósk sinni þar sem aftökur í Utah, eða nokkru öðru ríki Bandaríkjanna, fara ekki fram opinberlega. Síðasta opinbera aftakan var gerð í Kentucky árið 1936.

Dauðarefsingar eru sjaldgæfar í Utah, en árið 2024 var 48 ára fangi, Taberon Honie, tekinn af lífi með banvænni lyfjablöndu. Þar áður, áður 2010, var Ronnie Lee Gardner leiddur fyrir aftökusveit og skotinn til bana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu
Pressan
Í gær

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu