fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

5 merki um að maki þinn gæti verið að halda framhjá

Pressan
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tölfræði hefur sýnt að karlar eru líklegri til að halda framhjá en konur. Bandarísk rannsókn frá Institute of Family Studies leiddi í ljós að 20 prósent  giftra karla hafa haldið framhjá, en 13 prósent kvenna höfðu gert það. Í skýrslunni frá 2018 kom einnig fram að meðal giftra fullorðinna sem höfðu haldið framhjá maka sínum áður voru 40 prósent á þeim tíma fráskilin eða aðskilin.

Framhjáhaldið kemst oft upp þegar makinn er gripinn glóðvolgur við athæfið, en sérfræðingar segja ákveðna hegðun gefa til kynna að makinn stundi framhjáhald eða sé byrjaður undirbúning að því.

Skyndilegur áhugi á að þvo þvottinn sinn sjálfur

Mögulega er heimilisstörfunum þannig skipt nú þegar að makinn sér alfarið um þvottinn, en ef svo er ekki og hann byrjar skyndilega að sjá um þvottinn á sínum fatnaði án nokkurrar augljósrar ástæðu þá gæti það verið rautt flagg.

„Ef maki þinn, sem hefur aldrei sýnt mikinn áhuga á að þvo þvott, byrjar skyndilega að krefjast þess að þvo fötin sín sjálfur, gæti þetta verið viðvörunarmerki. Ef hann er að halda framhjá gætu hann haft áhyggjur af hlutum eins og ilmvatns- eða rakspíralykt, merki eftir varalit eða lausum hárum á fötunum sínum, og að þvo þvottinn sjálfur gerir honum kleift að fela þessi merki án þess að þú takir eftir því.“

Aukinn akstur

Ef akstur maka þíns er miklu meiri en venjulega gæti það þýtt að hann sé farinn að stunda afþreyingu fyrir utan svefnherbergi heimilisins.

„Breyting á akstursfjölda sem passar ekki við venjulega rútínu maka þíns eða vinnuskyldur getur verið annað lúmskt en afhjúpandi merki. Ef þeir segjast hafa verið lengur í vinnunni en vanalega eða í ræktinni, gæti mikil aukning á kílómetrafjölda sem passar ekki við það bent til leynilegra ferða til að hitta einhvern.“

Lægri akstur en búist var við gæti líka verið merki um sama Til dæmis er makinn segist vera á leið í ferð út á land, en kílómetratalan á bílnum haggaðist varla.

Breytt lykilorð

Allir eiga rétt á friðhelgi einkalífs og til dæmis að hafa símann sinn í friði, en breytingar á innskráningum geta valdið grunsemdum.

„Breytingar á friðhelgi einkalífs á tækjum maka þíns, eins og nýtt lykilorð, læst forrit eða útskráning úr sameiginlegum tækjum eins og fartölvu, geta bent til þess að viðkomandi sé að fela eitthvað.“

Samkvæmt rannsókn frá Global Investigations eru leyndarmál í símanum meðal algengustu merkja um framhjáhald.

Breytingar á eyðsluvenjum

Hefur maki þinn greitt háar fjárhæðir í sérverslun og afmælið þitt, jólin eða önnur stór dagsetning eða viðburður er ekki framundan? Þessi hegðun getur bent til þess að maki þinn sé að hitta einhvern annan sem hann er að kaupa gjafir eða annað fyrir.

„Hlutir eins og óútskýrð útgjöld, falin kaup eða óvenjulegar úttektir geta stundum verið merki um að maki þinn sé ótrúr. Hvort sem þeir eru að kaupa kvöldverði, gjafir, hótelherbergi eða samgöngur, þá hafa þeir sem standa í framhjáhaldi tilhneigingu til að eyða meiri peningum en venjulega.“

Breytingar á útliti þeirra

Er makinn skyndilega farinn að mæta í ræktina fimm sinnum í viku, eða langar eiginmann þinn að fljúga til Tyrklands í hárígræðslu? Slíkar breytingar eru möguleg viðvörunarmerki.

„Skyndileg, óútskýrð tilraun til að bæta útlit, svo sem ný föt, breytingar á hári eða aukinn tími í ræktinni, gæti verið merki um að reyna að heilla einhvern nýjan. Þó að sjálfsbætur og stolt af útliti sínu séu ekki grunsamlegar í sjálfu sér, getur það verið viðvörunarmerki þegar þau segja þér ekki hver hvöt þeirra er, eða ef þau sýna ekki áhuga á skoðun þinni eða athygli eftir breytingar á útliti þeirra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Í gær

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum
Pressan
Í gær

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir
Pressan
Í gær

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar