fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Sagður hafa sett á svið ótrúlega atburðarás til að koma eiginkonunni fyrir kattarnef

Pressan
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 07:00

Brendan, Christina og Juliana.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Réttarhöld í máli fertugs karlmanns, Brendans Banfield, sem grunaður er um að hafa myrt eiginkonu sína og karlmann í febrúar 2023, hófust í Virginíuríki í Bandaríkjunum í vikunni.

Málið þykir allt hið ótrúlegasta en Brendan þessi átti í ástarsambandi við 25 ára brasilíska konu, Juliana Peres Magalhaes, sem starfaði sem au-pair á heimili hjónanna.

Saksóknarar segja að Brendan hafi alls ekki viljað skilja við eiginkonu sína, Christinu Banfield, þar sem hann vildi ekki eiga á hættu að missa forræði yfir fjögurra ára syni þeirra.

Vefsíða fyrir kynferðislegar fantasíur

Brendan og Juliana eru sögð hafa hrint af stað metnaðarfullri áætlun til að koma Christinu fyrir kattarnef. Þau stofnuðu aðgang í hennar nafni á ónefndri vefsíðu fyrir kynferðislegar fantasíur og komu sér í samband við mann að nafni Joseph Ryan.

Skipulögðu þau Brendan og Juliana flókna atburðarás með Ryan, þar sem Ryan átti að leika eftir meinta nauðgunarfantasíu. Í samskiptunum kom fram að Ryan hafi átt að koma heim til Christinu með hníf og fjötra til að binda hana.

Christina átti sér einskis ills von þegar Ryan birtist á heimili hennar dag einn í febrúar 2023. Brendan og Juliana fylgdust með úr fjarlægð þegar Ryan kom að heimilinu þennan örlagaríka morgun og eltu hann. Þar inni er Brendan sagður hafa skotið Ryan til bana áður en hann réðst á eiginkonu sína með hnífnum og stakk hana til bana.

Ætluðu Brendan og Juliana, að sögn saksóknara, að láta það líta þannig út að Ryan hefði stungið Christinu og hún skotið hann til bana.

Harðneitar sök

Juliana og Brendan voru bæði ákærð fyrir morð af fyrstu gráðu, en ákærunni yfir Juliönu var breytt í manndráp eftir að hún féllst á að vitna gegn Brendan. Í réttarhöldunum í vikunni sagði hún að Brendan hefði skipulagt morðin. Hann hafi fyrst komið að máli við hana í október 2022 og sagt að hann vildi „losna við“ eiginkonu sína þar sem skilnaður væri ekki raunverulegur möguleiki.

Þá sagði Juliana að þau hefðu notað fartölvu Christinu til að stofna aðgang á umræddri vefsíðu og passað upp á hún væri heima þegar þau áttu í samskiptum við Ryan.

Brendan hefur neitað sök í málinu og segir verjandi hans, John Carroll, að Brendan hafi ekki stofnað umræddan aðgang. Hann muni færa sönnur á það í réttarhöldunum að Christina hafi sjálf gert það. Þá segir Carroll að lögregla hafi farið illa með Juliönu og nýtt sér erfiða stöðu hennar sem innflytjandi í Bandaríkjunum, fjarri fjölskyldu og vinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu
Pressan
Í gær

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu