
Það er kominn 14. janúar og mögulega eru öll áramótaheit sem sett voru þegar fokin út í buskann og komust jafnvel aldrei til framkvæmda.
Ef áramótaheitið þitt var og er enn að skipuleggja heimilið (betur) og losna við allt óþarfa dót þá er janúar kannski svolítið yfirþyrmandi. Sérstaklega ef það kom fullt af nýjum hlutum upp úr jólapökkunum sem þarf líka að raða og finna stað fyrir.
Vefsíðan Good Housekeeping er með ráð undir rifi hverju þegar kemur að málefnum heimilisins og þar segir að þrátt fyrir að skipulagið geti reynst yfirþyrmandi svona í byrjun árs þá eru ákveðnir hlutir sem má byrja á að losa sig við.
Fagfólk í skipulagningu segir þetta hlutina sem má láta gossa nú þegar. Vert er þó að muna að Góði hirðirinn tekur við öllu nýtilegu sem aðrir geta nýtt, og munið að endurvinna líka. Ekki láta allt bara í svörtu tunnuna.
Ef það flæðir allt úr fataskápnum og hann veldur þér stressi í hvert sinn sem þú sækir nýja flík, er málið að byrja þar.
„Farðu í gegnum fataskápinn og taktu út flíkurnar sem þú hefur ekki notað allt síðasta ár. Þetta skilur eftir pláss í fataskápnum fyrir föt sem þú notar og fékkst um jólin. Fötin geta líka nýst fólki í neyð sem fær flíkur sem það getur notað í vetur,“ segir Emily Mass úr Spaces by Emily.

Áttu það til að safna pappírum og eru bunkarnir orðnir of margir og háir?
„Pappírsrusl er ein helsta ástæða streitu heima fyrir. Það eru til ókeypis öpp eins og Scannable sem hjálpa þér að stafræna skjöl hratt. Prófaðu að afþakka pappírsreikninga og afskrá þig frá ruslpósti. Fyrir þá pappíra sem þú verður að eiga og geyma mæli ég með að hagræða mikilvægum skjölum og setja þau í möppu eða skipulagsmöppu,“ segir Caroline Solomon, sérfræðingur í heimilisskipulagningu.

Nú er rétti tíminn til að fara í gegnum rúmföt, handklæði og slíkt lín.
„Farið í gegnum auka rúmföt, koddaver og handklæði. Haldið allt að tveimur settum fyrir hvert rúm og gefið aukarúmfötin til dýraathvarfa eða samfélagsstofnana sem þurfa alltaf á þeim að halda,“ segir Elsa Elbert hjá Composed Living.

Við eigum það öll til að láta mat bíða of lengi þannig að hann rennur út og höfum það svo ekki í okkur að henda honum.
„Var maturinn að skemmast eða er útrunninn í matarskápnum þínum? Ef svo er, íhugaðu þá að hreinsa til í matarskápnum þínum. Losaðu þig við útrunninn mat, illa lyktandi krydd, vítamín sem þú tekur aldrei, lyf sem eru útrunnin, tískupróteinduft sem bragðast illa. Taktu síðan stöðuna á því sem þú átt og finndu út hvaða breytingar þú vilt gera í framtíðinni,“ segir Faith Roberson hjá Organize With Faith.
Athugið að skila útrunnum lyfjum og lyfjaumbúðum í apótek. Öll apótek taka við endurgjaldslaust.

Ef þú hefur verið að halda í hálfbiluð heimilistæki, þá er kominn tími til að henda þeim. „Hentu öllu sem virkar ekki lengur og taktu stöðuna á hvað þú notar og hverju þú þarft að skipta út,“ segir Amelia Meena hjá Appleshine.

Um leið og þú tekur jólaskreytingarnar niður og pakkar í kassa til næsta árs skaltu hugsa um hlutina sem þú tókst aldrei úr kassanum fyrir þessi jól.
„Ef skrautið hefur legið ósnert í geymslunni í eitt ár eða lengur er kominn tími til að losa sig við það. Gefðu hluti sem eru í góðu ástandi svo einhver annar geti notið þeirra og haltu aðeins þeim skreytingum sem endurspegla raunverulega núverandi stíl þinn,“ segir Elbert.

„Við eigum öll bækur sem við höfum lesið örfáar síður í og svo safna þær ryki á náttborðinu okkar eða bókahillunni. Gefðu þessar bækur til nytjamarkaða eða jafnvel bókasafnsins eða skólans þíns. Þú getur líka gefið þær vini eða fjölskyldumeðlimi. Þeir gætu notið þeirra jafnvel þótt þú hafir ekki lesið þær,“ segir Solomon.

Eftir því sem börnin verða eldri þá hætta þau að leika sér með ákveðin leikföng.
„Hreinsið allt gamalt dót eða brotið til að losa um pláss í leikherberginu, barnaherberginu, stofunni, hvar sem leikföngin eru geymd. Að færa leikföngin út gefur ykkur svigrúm til að anda og nauðsynlegt pláss fyrir nokkrar nýjar gjafir,“ segir Meena.

Það getur verið erfitt að losa sig við hugulsamar gjafir frá vinum eða fjölskyldumeðlimum, jafnvel þótt þú vitir að þú munt ekki nota þær. „Ef þú hefur haldið í hlut eingöngu vegna þess að einhver gaf þér það, þá er kominn tími til að losa þig við hann. Að halda hlutum eingöngu af skuldbindingu þyngir rými þitt og tilfinningalega orku. Að gefa til nytjamarkaða eða endurgjafa gerir hlutnum kleift að þjóna nýjum tilgangi,“ segir Elbert.

Það eru ákveðin eldhústæki sem við keyptum og bundnum miklar vonir við að nota, en eru bara enn í umbúðunum.
„Losið ykkur við allt sem er enn í umbúðunum! Ef þið hafið ekki notað það núna, er líklegt að það verði aldrei notað. Oft eru hlutir keyptir með miklum metnaði en aldrei notaðir í raun. Nú er góður tími til að rýma til í eldhúsinu eins mikið og mögulegt er,“ segir Meena.
