fbpx
Þriðjudagur 23.desember 2025
Pressan

Er þetta maðurinn sem skaut Charlie?

Pressan
Fimmtudaginn 11. september 2025 07:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregluyfirvöld í Utah í Bandaríkjunum leita nú að manninum sem skaut hinn 31 árs gamla Charlie Kirk til bana í gær. Charlie var skotinn á samkomu í háskóla í Utah þar sem hann hélt erindi.

Charlie var hægri sinnaður aðgerðasinni og baráttumaður og einn þekktasti stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Trump tilkynnti um andlát vinar síns á miðli sínum, Truth Social, í gærkvöldi.

Grunur leikur á að byssumaðurinn hafi komið sér fyrir á þaki byggingar skammt frá staðnum þar sem Charlie hélt erindi sitt. Myndbönd virðast styðja það en svartklæddur einstaklingur virðist liggja á þaki byggingar beint á móti Charlie í um 180 metra fjarlægð áður en skotið ríður af.

Lögregla handtók tvo menn á vettvangi í gær en þeim var sleppt skömmu síðar og eru ekki grunaðir um aðild að skotárásinni.

Charlie Kirk lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn; þriggja ára son og 16 mánaða dóttur. Þau voru öll á staðnum þegar Charlie var skotinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ungar konur hjálpuðu barni að fremja morð

Ungar konur hjálpuðu barni að fremja morð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vissi að eitthvað alvarlegt væri að þegar fastakúnni hætti að mæta

Vissi að eitthvað alvarlegt væri að þegar fastakúnni hætti að mæta
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvarf 3 ára og fannst 42 árum síðar – Hafði ekki hugmynd um að hún væri týnt barn

Hvarf 3 ára og fannst 42 árum síðar – Hafði ekki hugmynd um að hún væri týnt barn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hlógu þegar þeir óku viljandi aftan á reiðhjólamann – Dæmdir í vikunni og hlógu ekki þá

Hlógu þegar þeir óku viljandi aftan á reiðhjólamann – Dæmdir í vikunni og hlógu ekki þá
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Þú ert Dauði læknir, eitrari, morðingi. Þú ert smánarblettur læknastéttarinnar“

„Þú ert Dauði læknir, eitrari, morðingi. Þú ert smánarblettur læknastéttarinnar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Nýjar upplýsingar í máli ferðamanns sem hvarf sporlaust fyrir tveimur árum

Nýjar upplýsingar í máli ferðamanns sem hvarf sporlaust fyrir tveimur árum