fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Pressan

Skilaði stolnum fornleifum vegna bölvunar og krabbameins

Pressan
Miðvikudaginn 4. júní 2025 17:30

Frá Pompeii.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kanadísk kona skilaði nýlega munum sem hún hafði stolið úr hinni fornu borg Pompeii á Ítalíu en borgin lagðist í eyði árið 79 e.k. í kjölfar mikils eldgoss. Rústir borgarinnar voru síðar grafnar upp og standa enn líkt og minnisvarði en þar eru ferðamenn tíðir gestir. Konan sagði að bölvun hefði hvílt á mununum og vegna þeirra hefði hún fengið krabbamein.

Töluvert mun vera um þjófnaði í Pompeii. Konan sendi aðila sem starfar í ferðaþjónustu á svæðinu pakka með hinum stolnum munum og með fylgdi bréf þar sem hún játaði glæp sinn.

Sagðist hún hafa stolið mununum í heimsókn til Pompeii fyrir 15 árum. Greint er frá því í fjölmiðlum að konan heiti Nicole en eftirnafnið kemur ekki fram. Meðal þeirra muna sem hún stal og skilaði 15 árum síðar voru leirkrukka, flísar úr mósaíki og hlutur úr keramiki. Nicole segir hins vegar að eftir því sem árin hafi liðið hafi hin neikvæða orka í kringum hlutina magnast upp.

Bölvun

Í bréfinu kemur fram að Nicole hafi orðið fyrir ýmis konar ógæfu undanfarin áratug. Hún er orðin 36 ára gömul en hefur fengið brjóstakrabbamein tvisvar sem endaði með því að bæði brjóstin voru fjarlægð. Þar að auki hefur hún og fjölskylda hennar glímt við fjárhagserfiðleika. Vill Nicole meina að hún og hennar fjölskylda séu góðar manneskjur og hún vilji alls ekki að aðrir fjölskyldumeðlimir, hvað þá börn hennar, verði fyrir áhrifum af þeirri bölvun sem hvíli á hinum stolnu munum.

Segist Nicole hafa lært sína lexíu og vonast til að Guð fyrirgefi henni.

Fleiri hafa farið að fordæmi Nicole. Í sama pakka og hún sendi voru steinar úr Pompeii sem kanadískt par hafði stolið. Parið játaði einnig gjörðir sínar í bréfi. Í bréfinu biðst parið afsökunar á því að hafa ekki hugað að þjáningum íbúa Pompeii, sem létust í eldgosinu einkum eftir að hafa grafist undir ösku, þegar það stal steinunum. Biðst parið fyrirgefningar á því að hafa breytt svona rangt.

Parið stal steinunum sama ár og Nicole stal þeim munum sem hún tók. Það er ekki vitað hvort einhver tengsl séu á milli þeirra.

Þótt nokkuð sé um þjófnaði úr rústum Pompeii mun þó vera töluvert um að þjófarnir sjái að sér og skili hinum stolnu munum. Sérstakt safn hefur verið opnað þar sem stolnir munir frá borginni, sem hefur verið skilað, eru til sýnis.

Ósagt skal látið hvort það hvílir raunverulega bölvun á Pompeii en vonast er til að fregnir eins og þær sem borist hafa af Nicole verði til þess að ferðamenn hiki við að stela úr rústum borgarinnar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Bono skefur ekki utan af því og segir Elon Musk bera ábyrgð á dauða 300.000 manns

Bono skefur ekki utan af því og segir Elon Musk bera ábyrgð á dauða 300.000 manns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harry leitaði ráða um hvernig hann gæti breytt ættarnafni sínu

Harry leitaði ráða um hvernig hann gæti breytt ættarnafni sínu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Óttast að Rússar grípi til kjarnavopna eftir atburðina um helgina

Óttast að Rússar grípi til kjarnavopna eftir atburðina um helgina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leyniþjónustan sögð leita leiða til að fá Trump til að fylgjast betur með – Teiknimyndir, sprengingar og útsendingar í anda FOX-fréttastofunnar

Leyniþjónustan sögð leita leiða til að fá Trump til að fylgjast betur með – Teiknimyndir, sprengingar og útsendingar í anda FOX-fréttastofunnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Neitaði alla tíð að hafa myrt eiginkonu sína – svo bað hann son sinn um að gera sér hrottalegan greiða

Neitaði alla tíð að hafa myrt eiginkonu sína – svo bað hann son sinn um að gera sér hrottalegan greiða
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrrum lögmaður Trump segir að forsetinn sé afbrýðisamur og ætli að ná höggi á Musk

Fyrrum lögmaður Trump segir að forsetinn sé afbrýðisamur og ætli að ná höggi á Musk