Svona er heimur silfurskottunnar. Þær eru ekki hættulegar, þær bíta ekki og þær bera ekki sjúkdóma með sér. En þær eru nú hálf ógeðslegar því við tengjum þær ósjálfrátt við raka og jafnvel myglusvepp.
En það þarf ekki að rjúka upp til handa og fóta og hringja í meindýraeyði. Það er nefnilega til einfalt ráð sem silfurskottur hata.
Það sem þarf er lyftiduft og sykur. Flóknara er það ekki.
Þú blandar lyftidufti og sykri í jöfnum hlutföllum. Síðan stráir þú blöndunni í litlar hrúgur þar sem silfurskottur hafa sést, yfirleitt í hornum, með fram gólflistum, undir vaskinum eða fyrir aftan klósettið. Síðan er bara að bíða.
Sykurinn laðar silfurskotturnar til sína en þegar þær éta blönduna, þá bregst lyftiduftið við sýrunni í maga þeirra og búmm! Það verður sprenging, ekki mjög öflug en þó nógu öflug til að drepa silfurskotturnar.
Silfurskottur elska rakt umhverfi á borð við baðherbergi, þvottahús og kjallara. Ef þú vilt gera þeim lífið leitt, þá er bara að halda þessum rýmum þurrum. Loftaðu út, notaðu rakaeyði og þurrkaðu af flísunum.