fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Sæði úr manni, sem ber sjaldgæft krabbameinsvaldandi gen, notað í að minnsta kosti 67 tilfellum

Pressan
Föstudaginn 30. maí 2025 07:30

Frjóvgun eggs er kraftaverki líkast og sæðið þarf að vera vel synt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sæði úr manni, sem ber sjaldgæfa krabbameinsvaldandi gena stökkbreytingu, hefur verið notað til að búa til að minnsta kosti 67 börn. 10 þeirra hafa greinst með krabbamein. Málið hefur vakið upp umræður um skort á alþjóðlegum takmörkunum á hversu oft má nota sæðið úr sama sæðisgjafanum.

The Guardian skýrir frá þessu og segir að sérfræðingar hafi í gegnum tíðina varað við félagslegri og sálfræðilegri hættu sem getur fylgt því að nota sæði sama sæðisgjafans til að búa til fjölda barna í mörgum löndum.

Mál fyrrgreinds sæðisgjafa vekur áhyggjur af því hversu flókið það er að rekja slóðina og finna svo margar fjölskyldur þegar alvarleg heilsufarsógn steðjar að. Börnin, sem voru búin til með sæði mannsins, fæddust á árunum 2008 til 2015.

Dr Edwige Kasper, líffræðingur við Rouen sjúkrahúsið í Frakklandi, skýrði frá málinu á árlegri ráðstefnu the European Society of Human Genetics í Mílanó nýlega. Hann sagði að það sé nauðsynlegt að setja evrópskt þak á hversu oft megi nota sæði úr sérhverjum sæðisgjafa.

Málið kom upp þegar tvær fjölskyldur, sem engin tengsl voru á milli, höfðu samband við frjósemisstofuna, sem þær höfðu nýtt sér, þegar börnin þeirra höfðu greinst með krabbamein sem var talið tengjast sjaldgæfu arfgengu genaafbrigði. Sæðisbankinn, The European Sperm Bank, sem hafði útvegað sæðið, staðfesti að afbrigðið hefði fundist í hluta af sæði sæðisgjafans.

Þegar hann gaf sæði árið 2008 var ekki vitað að þetta afbrigði tengdist krabbameini. Sæðisgjafinn er sagður við góða heilsu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana