
Nuno, sem var 47 ára, var prófessor í kjarnorkuvísindum og verkfræði og upprunalega frá Portúgal.
Hann var búsettur í bænum Brookline, skammt frá stórborginni Boston, en nágrannar tilkynntu um skothvelli á heimili hans á níunda tímanum í fyrrakvöld.
Þegar lögregla kom á vettvang fannst Nuno í blóði sínu og hafði hann verið skotinn mörgum sinnum. Hann var fluttur á slysadeild alvarlega slasaður og lést í gærmorgun. Eftir því sem næst verður komist hefur enginn verið handtekinn vegna málsins.
Jennifer Paster, lögreglustjóri í Brookline, segir í samtali við CBS að hann geti ekki gefið miklar upplýsingar um málið. Fjölmiðlar og almenningur verði að sýna því skilning og þolinmæði enda rannsókn á frumstigi.
Nágranni, sem vildi ekki láta nafns síns getið, sagðist hafa heyrt þrjá háværa hvelli á mánudagskvöld. „Í fyrstu hélt ég að einhver væri að brjótast inn í íbúðina okkar, svo ég hringdi í nágranna og þeir sögðust halda að þetta hefðu verið skothvellir,“ sagði hann.
Anne Greenwald, sem hefur búið í hverfinu í 40 ár, sagði að hún og eiginmaður hennar hefðu einnig heyrt hávaða sem hljómaði eins og byssuskot. „Hann átti unga fjölskyldu, börnin gengu í skóla hér,“ sagði hún. „Þetta er hræðilegt og mjög óhugnanlegt.“
Loureiro var í vor skipaður forstöðumaður Plasma Science and Fusion Center við MIT. Um er að ræða eina stærstu rannsóknarstofu þessa virta háskóla með yfir 250 starfsmenn, nemendur og rannsakendur.
Í greininni kom fram að Loureiro væri þekktur fyrir rannsóknir sínar á eðli rafgass, eða plasma. Þá stundaði hann einnig rannsóknir á því hvernig nýta mætti hreina samrunaorku til að berjast gegn loftslagsbreytingum.