fbpx
Miðvikudagur 01.október 2025
Pressan

Morðingi hjónanna var tekinn af lífi í gærkvöldi

Pressan
Miðvikudaginn 1. október 2025 14:30

Matilda og Jacob Nestor voru myrt árið 1990.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem dæmdur var til dauða fyri morð á hjónum í Suður-Flórída árið 1990 var tekinn af lífi í gærkvöldi. Aftakan fór fram í Starke-fangelsinu í Flórída og var fanginn, Victor Tony Jones, líflátinn með banvænni lyfjablöndu. Hann var 64 ára.

Alls hafa þrettán fangar nú verið teknir af lífi í Flórída og hafa þeir aldrei verið fleiri. Tvær aftökur til viðbótar eru fyrirhugaðar síðar í þessum mánuði.

Í frétt AP kemur fram að framkvæmdin hafi hafist á slaginu 18:00 þegar gluggi inn í áhorfendasal var opnaður. Jones var spurður að því hvort hann vildi segja eitthvað að lokum en hann neitaði því. Hann var úrskurðaður látinn klukkan 18:13.

Jones þessi var nýbyrjaður að vinna hjá fyrirtæki hjónanna Matildu og Jacobs Nestor í Miami-Dade sýslu þegar hann réðst á þau í desember 1990. Samkvæmt dómsskjölum stakk hann Matildu í hálsinn og eiginmann hennar í brjóstið.

Þrátt fyrir að vera lífshættulega slasaður tókst Jacob að komast inn á skrifstofu sína þar sem hann náði í skammbyssu. Skaut hann fimm skotum í átt að Jones og hafnaði eitt þeirra í honum. Lögregla handtók Jones á vettvangi þar sem hann var með peninga og eigur hjónanna á sér.

Árið 1993 var hann dæmdur til dauða fyrir tvö morð og vopnað rán.

Verjendur Jones reyndu allt fram á síðustu stundu að fá aftökunni frestað eða dómnum breytt í lífstíðarfangelsi. Reyndu þeir að færa rök fyrir því að hann glímdi við þroskahömlun og hefði mátt sæta kynferðislegri misnotkun á unglingsárum sínum. Hæstiréttur hafnaði beiðninni, meðal annars í ljósi þess að fullyrðingar um misnotkun komu aldrei fram þegar morðmálið fór fyrir dóm á sínum tíma.

Síðan dauðarefsing var tekin aftur upp í Bandaríkjunum árið 1976 hafði Flórída, áður en árið 2025 gekk í garð, aldrei áður framkvæmt fleiri en átta aftökur á einu ári – það var árið 2014. Á þessu ári hafa sem fyrr segir þrettán verið teknir af lífi í ríkinu og er búist við að þær verði fleiri á næstu vikum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Starfskona á barnaheimili dæmd fyrir ofbeldi gegn 21 barni – „Aðeins verstu manneskjur ráðast á varnarlaus börn“

Starfskona á barnaheimili dæmd fyrir ofbeldi gegn 21 barni – „Aðeins verstu manneskjur ráðast á varnarlaus börn“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Rotnandi líkið í Teslunni – Segir galið að söngvarinn hafi ekki verið handtekinn og ákærður fyrir barnaníð

Rotnandi líkið í Teslunni – Segir galið að söngvarinn hafi ekki verið handtekinn og ákærður fyrir barnaníð
Pressan
Fyrir 1 viku

„Martraðarbakteríur“ sækja í sig veðrið í Bandaríkjunum

„Martraðarbakteríur“ sækja í sig veðrið í Bandaríkjunum
Pressan
Fyrir 1 viku

Elon Musk gekk of langt – Ríkisstarfsmenn endurráðnir eftir 7 mánaða frí á fullum launum

Elon Musk gekk of langt – Ríkisstarfsmenn endurráðnir eftir 7 mánaða frí á fullum launum