fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Í fyrsta sinn í 30 ár – Fimm dagar í röð án þess að nokkur væri skotinn í New York – Jinxaði löggan þetta?

Pressan
Þriðjudaginn 28. janúar 2025 08:30

Frá New York.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá sunnudegi og fram á fimmtudag í síðustu viku var lögreglunni í New York ekki tilkynnt um eina einustu skotárás. Þetta teljast mikil tíðindi í borginni því að meðaltali er tilkynnt um tvær skotárásir á dag.

En aðeins fjórum mínútum eftir að lögreglan skýrði frá þessu á samfélagsmiðlum, þá var tilkynnt um skotárás. Spurningin er því hvort löggan hafi jinxað þetta?

Í færslu á X skrifaði lögreglan að frá því að tölvukerfi hennar var tekið í notkun 1994, hafi aldrei liðið svona langur tími á milli tilkynntra skotárása.

New York Post segir að aðeins fjórum mínútum eftir að færslan var birt, hafi 34 ára karlmaður verið skotinn nokkrum skotum í Brooklyn.

Lögreglan hefur í auknum mæli beint sjónum sínum að glæpamönnum sem nota ólögleg skotvopn og segir að þetta hafi orðið til þess að verulega hafi dregið úr skotárásum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér