fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
Pressan

Kennsl borin á rotnandi lík í yfirgefinni Teslu söngvarans – Ferilinn hefur borið hnekki

Pressan
Fimmtudaginn 18. september 2025 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borin hafa verið kennsl á rotnandi lík sem fannst í yfirgefinni Teslu söngvarans D4vd í Kaliforníu mánudaginn 8. september. Um unglingsstúlku er að ræða að sögn yfirvalda í Los Angeles á þriðjudag. Bifreiðin hafði verið haldlögð af yfirvöldum í vikunni á undan og flutt á bifreiðastæði á hennar vegum.

Lík stúlkunnar var vafið inn í plast og var í læstu skotti Teslunnar, þar sem sólin skein á bílinn í hitanum í Kaliforníu í að minnsta kosti fimm daga. Líkið var svo illa rotnað að það var ekki alveg heilt og var tilkynning til yfirvalda á þá leið að mikla ólykt lagði frá bílnum.

D4vd, sem heitir löglega David Anthony Burke, var tengdur málinu eftir að yfirvöld röktu bílnúmer Teslunnar með Texas-númeraplötunni við hann. Hann hafði ekki tilkynnt bifreiðina stolna.

Nafn stúlkunnar hefur ekki verið gefið upp þar sem enn er eftir að tilkynna einhverjum ættingja hennar um málið. Samkvæmt heimildum ABC 7 var stúlkan á aldrinum 14 til 15 ára. Stúlkan mun hafa verið 175 sm á hæð, með bylgjað svart hár og aðeins um 34 kg, sem um það bil 10 kg minna en meðalstúlka af hennar hæð ætti að vega.

Stúlkan fannst í stuttermabol, svörtum leggings og með gult armband og eyrnalokka. Hún var einnig með húðflúr á hægri vísifingri sem á stóð „Shhh…“

Burke hefur sýnt fullt samstarf við lögregluna á meðan hann heldur tónleikaferðalagi sínu áfram.

David Anthony Burke

Þegar líkið fannst í bílnum var Burke að undirbúa tónleika í Minneapolis og hafði verið að deila stöðugum færslum með tveimur milljónum fylgjenda sinna á Instagram.

Þrátt fyrir fullt samstarf við yfirvöld hefur ferill hans borið hnekki vegna málsins. Fyrirtækið Crocs og Hollister sleit samstarfi þeirra aðeins nokkrum dögum eftir að tilkynnt var að Burke væri andlit samstarfsverkefnisins „Dream Drop“. Myndirnar af vörunni sem Burke var fyrirsæta fyrir voru allar birtar, en andlit hans var klippt burt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaxandi óánægja með yfirmann Alríkislögreglunnar

Vaxandi óánægja með yfirmann Alríkislögreglunnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hægri- og vinstrimenn Bandaríkjanna keppast við að sverja af sér meinta skotmanninn – En hvað er vitað um skoðanir hans?

Hægri- og vinstrimenn Bandaríkjanna keppast við að sverja af sér meinta skotmanninn – En hvað er vitað um skoðanir hans?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fékk ekki hlutverkið sem hann sóttist eftir – Leikstjórinn vildi ekki „Luke Skywalker“

Fékk ekki hlutverkið sem hann sóttist eftir – Leikstjórinn vildi ekki „Luke Skywalker“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Dularfulli brúðkaupsgesturinn – Brúðurin komst að sannleikanum mörgum árum síðar

Dularfulli brúðkaupsgesturinn – Brúðurin komst að sannleikanum mörgum árum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Myrti börnin sín – Líkin fundust fjórum árum síðar í ferðatöskum keyptum á netuppboði

Myrti börnin sín – Líkin fundust fjórum árum síðar í ferðatöskum keyptum á netuppboði
Pressan
Fyrir 6 dögum

Ætla að refsa útlendingum sem gera lítið úr andláti Charlie Kirk

Ætla að refsa útlendingum sem gera lítið úr andláti Charlie Kirk