Hópurinn hefur komið við sögu í málum í Svíþjóð og Þýskalandi og nýlega kom hann við sögu í norsku máli að sögn Dagbladet.
Erlendir fjölmiðlar hafa lýst hópnum sem satanískum, sadískum og höllum undir nýnasisma. Meðlimir hans pressa á börn að veita sér sjálfsáverka, til að pynta og drepa gæludýr, fremja ofbeldisverk, kynferðisofbeldi og meira að segja morð. Þetta er gert í gegnum spjallhópa á Internetinu.
Ungur drengur, undir lögaldri, er nú í gæsluvarðhaldi í Noregi í máli sem má rekja til Ástralíu. Hann er meðal annars grunaður um að hafa fengið ástralska stúlku til framkvæma ákveðnar kynlífsathafnir á sjálfri sér.
Hann er einnig grunaður um vörslum mikils magns af barnaklámi og að hafa sýnt af sér kynferðislega hegðun gagnvart 12 ára barni. Lögreglan telur að drengurinn hafi verið í beinu sambandi við „Slain“, sem er 15 ára Svíi og leiðtogi „764“. Expressen segir að hann hafi ráðist á fólk með hníf og tekið árásirnar upp.
Talsmaður lögreglunnar sagði að fórnarlömbin séu þrælar „meistara“ og þau myndi oft tilfinningasamband við viðkomandi. Þau sjái ekki neitt glæpsamlegt við þetta en dæmi séu um að þau verði fyrir kynferðislegri áreitni og séu látin veita sjálfum sér áverka. Myndum af þessu sé síðan deilt á Internetinu.
„Þetta er óhugnaður í nýjum hæðum. Það er algengt að fórnarlömbin séu beitt þrýstingi, þvinguð og hvött til að skera sig og skera bókstaf eða notendanafn „meistara“ síns í húð sína. Sum þeirra eru þannig merkt fyrir lífstíð,“ sagði talsmaður lögreglunnar.
Hópurinn var stofnaður 2021 af bandaríska unglingspiltinum Bradley Cadenhead. Hann afplánar nú 80 ára dóm. Nafnið „764“ er dregið af póstnúmerinu í heimabæ hans Stephenville í Texas.