fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Pressan

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann

Pressan
Sunnudaginn 29. júní 2025 19:30

Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spergilkál, sem margir þekkja kannski betur sem brokkólí, inniheldur Sulforaphan sem gerir þetta ljúffenga kál að meiru en bara ljúffengum mat. Efnið er einstakt og virkjar ákveðin ensím í líkamanum sem afeitra hann og losa líkamann við eiturefnin.

Þetta hefur Danska ríkisútvarpið eftir Anette Harbech sem hefur skrifað bókina ´Hjernegod mad´ og rekur heimasíðuna madforlivet.com. Hún segir að Sulforaphan bindi vandræðaefni og óæskileg efni í líkamanum og sjái um að losa líkamann við þau. Efnið er í fleiri káltegundum og grænu grænmeti en spergilkál innheldur einna mest af því.

Hún segir að til að efnið virki sem allra best þurfi að sjóða spergilkálið í um eina mínútu.

Mæður þessa heims hafa því haft mikið til síns máls í gegnum tíðina þegar þær hafa sagt börnum sínum að borða meira spergilkál því það væri svo hollt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Maria lagði á ævintýralegan flótta til að geta tekið við friðarverðlaunum Nóbels

Maria lagði á ævintýralegan flótta til að geta tekið við friðarverðlaunum Nóbels
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tesla olli eldsvoða og sex manna fjölskylda missti allt – Telur að kraftaverk hafi bjargað lífi þeirra

Tesla olli eldsvoða og sex manna fjölskylda missti allt – Telur að kraftaverk hafi bjargað lífi þeirra