Kona nokkur sagðist yfir sig hneyksluð eftir að hún heyrði af fyrirætlan systur sinnar og unnusta hennar um brúðkaup parsins.
„Þau kalla brúðkaupið „sameiginlega hátíð“, ætla að rukka gesti um aðgangseyri og finnst eðlilegt að gestir aðstoði við að fjármagna brúðkaupið,“ sagði konan í færslu á Reddit spjallborðinu „Am I Overreacting“.
Konan sagði að eldri systir hennar og unnusti hennar vilji að ástvinir þeirra taki þátt í kostnaði við hátíðarhöldin, annars verður ekki tekið á móti þeim á stóra deginum.
„Í stað þess að bjóða fólki bara að fagna ákváðu þau að allir fjölskyldumeðlimir þyrftu að borga fyrir að mæta. Ekki bara að greiða fyrir eigin fatnað og ferðalag við að mæta (sem mér finnst eðlilegt), heldur í raun að leggja út fyrir brúðkaupskostnaðinum, hlutum eins og veitingum, blómum, skreytingum og öðru sem þau hafa skipulagt á þessum fína hótelstað. Þau kalla þetta „sameiginlega hátíð“ og láta eins og það sé eðlilegt að gestir aðstoði við að fjármagna hana.“
Konan segir að þegar systir hennar tilkynnti henni um áætlunina reyndi konan að fá systur sína til að skipta um skoðun, en tilvonandi brúðurin stóð föst á sínu.
„Ég sagði henni að mér þætti þetta mjög óþægilegt og mér fyndist þetta minna eins og brúðkaup og meira eins og að kaupa miða í einkasamkvæmi. Ég stakk líka blíðlega upp á því að þau myndu hafa brúðkaupið ódýrara ef þau væru ekki með nægan pening, en hún þaggaði bara niður í mér. Hún fór í algjöra vörn og sagði að ég væri ekki að styðja hana.“
Konan segir að hún hafi síðan fengið boðskort í pósti, og með því hafi fylgt miði þar sem stóð að ef hún væri búin að leggja fram framlag sitt væri hún velkomin, annars ætti hún ekki að mæta.
Konan segir að þetta hafi komið henni í uppnám og valdið gremju hjá henni.
„Ég elska systur mína, en mér finnst mjög rangt að vera beðin um að borga hundruð ef ekki allt að þúsund dala bara fyrir að vera þarna, sérstaklega þegar ég var ekki einu sinni beðin um að vera brúðarmeyja eða neitt. Auk þess er hún ekki að greiða hótelherbergi, og brúðkaupið er á mjög dýrum stað. Ég er enn í skóla, ég vinn í hlutastarfi og á bara ekki svona mikla peninga til að eyða.“
Hún sagði foreldra þeirra hvetja hana til að borga sinn hlut og mæta í brúðkaup systur sinnar til að „halda friðinn“. Hún segir einnig að hún ætti ekki að þurfa að finnast hún skylduð til að punga út pening, bara til að sanna að henni þyki vænt um systur sína.
Konan hefur því ákveðið að standa á sínu og mæta ekki í brúðkaupið. Í leit að ráðum, spurði hún notendur Reddit hvort það væri ósanngjarnt af henni.
Netverjar voru sammála konunni og sögðu að hún ætti rétt á því að láta ekki eftir kröfum systur sinnar.
„Viðbrögð þín eru eðlileg. Að rukka aðgangseyri fyrir brúðkaup er skrítið og hallærislegt,“ skrifaði einn.
„Allt þetta ástand hljómar eins og henni finnist systir þín hafin yfir aðra. Brúðkaup eru persónulegar ákvarðanir og að ætlast til að gestir beri kostnaðinn er algjörlega út í hött. Ef einhver hefur ekki efni á stóru brúðkaupi er athöfn hjá sýslumanni fallegur, virðingarfullur kostur. Enginn ætti að vera með sektarkennd yfir að vera blankur til að taka þátt í hátíðahöldum annarra,“ skrifaði annar.
Nokkrir spurðu af hverju foreldrar þeirra systra og aðrir fjölskyldumeðlimir tækju þátt í þessu fyrirkomulagi.
„Hvað er að gerast í heiminum þegar pör búast við að gestir borgi fyrir að vera viðstaddir brúðkaupið þeirra, frekjan og tilætlunarsemin. Ekki fara. Þetta er bara rangt og ef fjölskyldan er að taka undir þetta, þá eru þau alveg jafn geðveik. Ímyndaðu þér ef allir gestir neituðu að mæta? Held að það yrði ekkert brúðkaup. Fjölskyldan ýtir undir þetta.“
Einn benti á að brúðhjónin komi fram við ástvini sína eins og þau séu að „borgandi viðskiptavinir“ frekar gestir sem velkomnir eru. „Ef þú verður að borga fyrir að mæta, þá ertu ekki gestur, þú ert viðskiptavinur. Sem viðskiptavinur myndi ég vilja fá að ákveða hvað ég borða, hvar ég sit og kannski jafnvel hvaða tónlist verður spiluð.“