fbpx
Mánudagur 03.nóvember 2025
Pressan

Fær 2,1 milljarð dollara í bætur – Fékk krabbamein af völdum illgresiseyðis

Pressan
Miðvikudaginn 26. mars 2025 07:00

Roundup.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómstóll í Georgíu í Bandaríkjunum hefur dæmt fyrirtækið Bayer til að greiða manni 2,1 milljarða dollara í bætur. Maðurinn höfðaði mál á hendur fyrirtækinu og hélt því fram að hann hefði fengið krabbamein vegna þess að hann notaði illgresiseyði, sem innihélt glýfosfat, frá fyrirtækinu.

Bayer, sem er þýskt, framleiðir lyf og ýmis önnur efni, þar á meðal illgresiseyðinn Roundup en það var hann sem maðurinn notaði. Fyrirtækið segist ætla að áfrýja dómnum.

Fyrirtækið hefur fram að þessu greitt um 10 milljarða í málum, þar sem það hefur gert sátt við málshöfðendur, þar sem því hefur verið haldið fram að glýfosfat valdi krabbameini og hafi valdið krabbameini í notendum Roundup. Fyrirtækið stendur fast á að efnið sé öruggt ef það er meðhöndlað á réttan hátt og segir að það valdi ekki krabbameini.

Roundup er mikið notað í Evrópu en sumar útgáfur þess innihalda ekki lengur glýfosfat en aðrar, ætlaðar fagfólki, innihalda margar hverjar efnið.

60.000 aðrar málshöfðanir bíða Bayer sem hefur lagt um 6 milljarða dollara til hliðar til að mæta kostnaðinum við þær. Fyrirtækið eignaðist Roundup þegar það tók bandaríska fyrirtækið Monsanto yfir 2018.

Bayer segir í yfirlýsingu að fyrirtækið sé ósammála niðurstöðu kviðdómsins sem stangist á við flest vísindaleg gögn og heimildir eftirlitsstofnana til að nota efnið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Efnuð hjón töldu sig hafa fundið draumabarnapíuna en hún reyndist vera þeirra versta martröð

Efnuð hjón töldu sig hafa fundið draumabarnapíuna en hún reyndist vera þeirra versta martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gabba og lokka börn til að fremja morð

Gabba og lokka börn til að fremja morð
Pressan
Fyrir 5 dögum

Mættu til að handtaka fjölskylduföður fyrir alríkissvik – Höfðu ekki hugmynd um hryllinginn sem leyndist á heimilinu

Mættu til að handtaka fjölskylduföður fyrir alríkissvik – Höfðu ekki hugmynd um hryllinginn sem leyndist á heimilinu
Pressan
Fyrir 6 dögum

Leigubílstjórinn lánaði farþega símann sinn í smástund – Hann átti eftir að sjá eftir því

Leigubílstjórinn lánaði farþega símann sinn í smástund – Hann átti eftir að sjá eftir því