fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Fimm snemmbúin merki um elliglöp – Þar á meðal eitt sem kemur fram að næturlagi

Pressan
Sunnudaginn 16. febrúar 2025 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur skipt miklu máli að uppgötva merki um elliglöp snemma. Segja sérfræðingar að það veiti heilbrigðisstarfsfólki og fjölskyldum sjúklinganna tækifæri til að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða sem geta seinkað sumum af verstu sjúkdómseinkennunum og hjálpað sjúklingnum að lifa betra lífi.

Bresku Alzheimerssamtökin segja að enn sé engin lækning þekkt við Alzheimers en það sé mikilvægt að þekkja snemmbúin merki og einkenni elliglapa.

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um fimm snemmbúin merki elliglapa sem ekki má hunsa.

Breytingar á persónuleika – rannsókn, sem Angelina Sutin hjá Flórída ríkisháskólanum stýrði, leiddi í ljós að fólk, sem glímir við elliglöp, gengur í gegnum persónuleikabreytingar áður en andleg hnignun verður sýnileg. Þetta getur sýnt sig í því að sjúklingurinn verður ekki eins mannblendinn, ekki eins vingjarnlegur og áður og sýnir minni ábyrgðartilfinningu. Það getur verið auðveldara að taka eftir breytingum á borð við að viðkomandi haldi sig til hlés á félagslega sviðinu eða umgengst færri en að taka eftir minnistapi.

Vandamál við akstur – Akstur krefst ýmissa hæfileika á andlega sviðinu og erfiðleikar við akstur geta verið snemmbúið merki um andlega hnignun að sögn Ganesh Babulal hjá Washington háskóla. Breytingar á borð við skerta viðbragðsgetu eða aukin hætta á óhöppum geta bent til vandamála í taugakerfinu.

Missir á lyktarskyni – Missir lyktarskyns er oft snemmbúið merki um taugasjúkdóma á borð við Alzheimers, Lewy body-elliglöp og Parkinsons. Þessir sjúkdómar hafa snemma áhrif á lyktarskynið og það getur verið mikilvæg vísbending um tilvist sjúkdómsins og það löngu áður en önnur einkenni koma fram.

Svefnvandamál – Alvarleg svefnvandamál á borð við að vakna mjög snemma eða að geta ekki haldið sér vakandi að degi til, geta tengst elliglöpum.

Fjárhagsvandræði – Vandræði á borð við að gleyma að borga reikninga, hlutir keyptir án umhugsunar eða fjárhagsleg einfeldni geta bent til breytinga á hugrænni getu. Taugafræðingurinn Winston Chiong segir að skyndilega fjárhagsvandræði geti verið snemmbúið merki um elliglöp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Rifja upp leikfangaeign Barron Trump eftir umdeild ummæli Bandaríkjaforseta

Rifja upp leikfangaeign Barron Trump eftir umdeild ummæli Bandaríkjaforseta
Pressan
Í gær

Leynilegar njósnaaðgerðir sýna hvernig Bandaríkin eru þegar farin að undirbúa innlimun Grænlands

Leynilegar njósnaaðgerðir sýna hvernig Bandaríkin eru þegar farin að undirbúa innlimun Grænlands
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Uppnám fyrir utan heimili Eddie Hall – „Ég ríf af þér hausinn“

Uppnám fyrir utan heimili Eddie Hall – „Ég ríf af þér hausinn“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump er enn að hella sér yfir blaðamenn – jafnvel þá sem eru með honum í liði

Trump er enn að hella sér yfir blaðamenn – jafnvel þá sem eru með honum í liði