Donald Trump Bandaríkjaforseti verður seint kallaður aðdáandi fjölmiðla, að minnsta kosti ekki þeirra sem dirfast að spyrja hann óþægilegra og jafnvel gagnrýnna spurninga.
Frá því að hann tók við embætti í janúar hefur ríkisstjórn hans reynt að útiloka fjölmiðla frá blaðamannafundum Hvíta hússins og skipta þeim út fyrir hægri sinnaða áhrifavalda og hlaðvarpsstjórnendur. Eins hefur forsetinn ekki veigrað sér við því að láta blaðamenn, sem spyrja hann spurninga sem hann vill ekki svara eða rengja það sem hann segir, heyra það.
Á síðustu dögum hefur forsetinn ítrekað misst sig á eða vegna blaðamanna. Á sunnudaginn lét hann blaðamann Wall Street Journal heyra það. Blaðamaðurinn hafði spurt um viðræður Trump við Vladimir Pútín Rússlandsforseta og tilraunir til að stilla til friðar milli Rússlands og Úkraínu.
Trump spurði þá á móti hvaða miðli blaðamaðurinn kæmi frá og fékk þá svarið að viðkomandi væri frá The Wall Street Journal.
„Það hélt ég líka. Drengur, þitt fólk kemur svo illa fram við okkur. Wall Street Journal er farið til fjandans. Rotinn miðill. Heyrirðu hvað ég sagði? Rotinn blaðasnepill.“
Hann bauð svo blaðamanninum að bera upp spurningu en neitaði svo jafnharðan að svara.
„Ég svara ekki Wall Street Journal því það væri sóun á tíma mínum. Það eru viðræður í gangi en ég vil ekki ræða það við Wall Street Journal. Wall Street Journal er Kínasinnaður miðill og slæmur fyrir þjóðina okkar.“
Að því sögðu sneri Trump sér að næsta blaðamanni.
Trump: Who you with?
Reporter: Wall Street Journal
Trump: Wall Street Journal has truly gone to hell. Rotten newspaper. You hear me, what I said… It’s a rotten newspaper.. pic.twitter.com/w81IMLJFah
— Acyn (@Acyn) May 5, 2025
Ekki einu sinni uppáhalds sjónvarpsstöð Trump sleppur undan reiði forsetans. Hann hefur nú kallað eftir því að einn fréttamaður þar fari á eftirlaun og kallað annan lúsablesa.
Trump segir að hinn 71 árs Howard Kurtz ætti að skella sér á eftirlaun og það eftir að Kurtz reyndi að koma forsetanum til varna í umræðum um slæmt gengi forsetans í skoðanakönnunum. Forsetanum finnst Kurtz hafa tekist illa til og er óánægður með þá ákvörðun fréttamannsins að birta klippur úr umfjöllunum annarra miðla um skoðanakannanir.
„Öllum woke-fréttamönnum í bransanum, fólki sem enginn horfir á hjá CNN, MSDNC og fleirum, er básúnað í þessum þætti með sínum neikvæðu og föstu yfirlýsingum og svo er mér bara aumingjalega komið til varna af Howie og hans hóp.“
Forsetinn hélt svo áfram: „Varnirnar sem Howie kemur með fyrir mig eru svo aumkunarverðar að það væri betra að hann hefði sleppt þeim.“
Nokkrum klukkustundum síðar tókst fréttamanninum Karl Rove að reita forsetann til reiði með umfjöllun sinni um fyrstu 100 daga Trump í embætti. Rove leyfði sér að viðra þá skoðun að forsetinn ætti að einbeita sér stóru málunum sem skiptu kjósendur mestu í kjörklefanum í nóvember – efnahagurinn og verðbólga. Það hafi forsetinn ekki gert til þessa.
Trump trompaðist.
„Þessi gæi er algjör lúsablesi sem hefur haft rangt fyrir sér um nánast allt,“ skrifaði forsetinn reiður á Truth Social.
Eins vakti viðtal Trump við þáttastjórnanda Meet the Press athygli á dögunum. Þar spurði blaðakonan Kristen Walker, frá NBC-fréttastofunni, forsetann um verðhækkanir í matvöruverslunum í kjölfar róttækrar tollastefnu Trump.
Trump vildi ekkert kannast við þessar verðhækkanir og skammaði blaðakonuna.
„Vá, vá. Þetta er orðið svo óheiðarlegt viðtal bara svona strax,“ sagði forsetinn og hélt svo langa ræðu um að matvöruverð hefði lækkað, bensín og hráolía væri nú ódýrara og svona mætti áfram telja. Allt þökk sé honum. Ef um verðhækkanir væri að ræða þá mætti rekja þær til embættisverka forvera hans, Joe Biden.
„Hann eyddi eins og vitleysingurinn sem hann var. Hann eyddi eins og hálfviti og það bitnaði á verðbólgunni.“