fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
Pressan

Unglingur banaði móður sinni með exi eftir að hún tók af honum spjaldtölvuna

Pressan
Föstudaginn 8. nóvember 2024 10:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Unglingsdrengur í Rússlandi varð móður sinni að bana eftir að hún tók af honum spjaldtölvuna til að fá hann til að sinna heimanámi sínu. Drengurinn réðst á móður sína með exi og barði hanna ítrekað í höfuðið þar sem hún lá í rúmi sínu.

Að sögn lögreglu notaði drengurinn svo exina til að búta móður sína niðu. Að því loknu lokaði hann hurðinni að herberginu og negldi hana fasta. Hann fór svo í næstu sjoppu til að kaupa sér súkkulaði, sneri svo heim og spilaði smá Minecraft og hafði svo samband við lögreglu. Atvikið átti sér stað í þorpinu Krasnaya Storozhka. Móðirin hét Alexandra Gabbasova og var hún 48 ára gömul.

Lögregla greinir frá því að Alexandra hafi haft áhyggjur af því að sonur hennar væri að spila of mikið af tölvuleikjum en hann átti til að verja allt að 12 klukkustundum á dag í tölvunni. Hann var að falla aftur úr í skóla þar sem hann sinnti ekki heimanámi. Þennan örlagaríka dag komist Alexandra að því að sonur hennar hefði vanrækt heimanámið á meðan hann var veikur heima. Hún ákvað því að taka af honum fjarstýringar, símtæki og spjaldtölvu. „Unglingurinn móðgaðist, hann fann exi og hakkaði móður sína niður með henni. Síðan gaf hann sig fram við lögreglu og játaði að hafa banað henni.“

Alexandra hafði verið látin í um fjórar klukkustundir þegar lögregla kom á vettvang. Drengurinn er nú í gæsluvarðhaldi en málið hefur vakið mikinn óhug í þorpinu. Kennarar lýsa drengnum sem rólyndum dreng sem lítið fór fyrir.

DailyMail greinir frá

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Sakamál: Myrti fjölskylduna og bað síðan um að fá að fara heim

Sakamál: Myrti fjölskylduna og bað síðan um að fá að fara heim
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofbeldismaður fleygði 7 ára fram af brú eftir voðaverk – Nú mætir hún geranda sínum fyrir dómi

Ofbeldismaður fleygði 7 ára fram af brú eftir voðaverk – Nú mætir hún geranda sínum fyrir dómi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hægri- og vinstrimenn Bandaríkjanna keppast við að sverja af sér meinta skotmanninn – En hvað er vitað um skoðanir hans?

Hægri- og vinstrimenn Bandaríkjanna keppast við að sverja af sér meinta skotmanninn – En hvað er vitað um skoðanir hans?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona getur þú prófað hversu heilbrigð lungun þín eru

Svona getur þú prófað hversu heilbrigð lungun þín eru
Pressan
Fyrir 5 dögum

Dularfulli brúðkaupsgesturinn – Brúðurin komst að sannleikanum mörgum árum síðar

Dularfulli brúðkaupsgesturinn – Brúðurin komst að sannleikanum mörgum árum síðar
Pressan
Fyrir 5 dögum

Falsfréttir um morðið á Charlie Kirk kollsteyptu lífi Kanadamanns á lífeyrisaldri

Falsfréttir um morðið á Charlie Kirk kollsteyptu lífi Kanadamanns á lífeyrisaldri