Það var fyrir tveimur árum sem sónarmyndir voru teknar af botni vatnsins og sáust hringirnir þá og gátu vísindamenn ekki útskýrt hvað þeir væru. Nú hefur ný rannsókn leitt í ljós að þetta eru risastórar holur, gígar, en vísindamenn segja að enn eigi eftir að svipta hulunni af mörgum leyndarmálum þeirra.
Hringirnir eru náttúrufyrirbæri, það liggur fyrir. Russ Green, sjávarfornleifafræðingur, var einn þeirra sem uppgötvaði þá fyrir tveimur árum. Í samtali við Live Science sagði hann að það sé spennandi að uppgötva eitthvað nýtt í Lake Michigan en þessir hringir standi framar öllu öðru því þeir séu á töluverðu dýpi, um 150 metrum, og ekki hafi verið vitað um tilvist þeirra áður.
Gígarnir eru 6 til 12 metra djúpir og 150 til 300 metrar á breidd að sögn Brendon Baillod, sem fann þá á svipuðum tíma og vísindamennirnir.
Í rannsóknarleiðangri í ágúst fundu vísindamenn um 40 gíga en telja að þeir séu fleiri. Þeir eru eins og „fullkomnir litlir hringir“ að sögn Steve Ruberg, vísindamanns hjá GLERL.