fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Heilbrigðisstarfsfólk hvatt til að kalla leggöng bónusgöt

Ritstjórn DV
Laugardaginn 8. júlí 2023 19:00

Mynd: Kraftur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt fréttum Daily Mail hafa kvenréttindasamtök í Bretlandi gagnrýnt góðgerðarsamtök þar í landi, sem hafa það að megin markmiði að vekja athygli á leghálskrabbameini, fyrir að leggja til að heilbrigðisstarfsfólk kalli leggöng framvegis bónusgöt til að forðast að særa tilfinningar trans-karlmanna og annars fólks, með leggöng, sem finnur sig ekki í kynjatvíhyggjunni.

Tillagan var sett fram á vefsíðu sem samtökin halda úti og er ætluð heilbrigðisstarfsfólki sem vinnur að meðhöndlun sjúklinga með leghálskrabbamein.

Kvenréttindasamtök hafa sagt tillöguna litaða kvenhatri og hreinlega afmennska konur.

Góðgerðarsamtökin hafa sagt að þau leggi ekki til að allar konur noti orðið bónusgat en það sé mikilvægt að ná til trans-karlmanna og fólks sem passar ekki í kynjatvíhyggjuna.

Þrátt fyrir þessar útskýringar var þessi nýyrðasmíð fordæmd.

Talskona samtaka íhaldskvenna segir þessar hugmyndir lið í að rugla ungt fólk í rýminu og gera það fjarlægara eigin líkama og kynvitund. Það sé verið að fá fleiri til að verða trans. Það sé verið að útrýma kvenlægni úr enskri tungu. Samtök sem beini sjónum einkum leghálskrabbameini ættu að hafa ýmislegt betra við tímann að gera.

Samtökin bjuggu nýyrðið til með hjálp samtaka trans- og annars hinsegin fólks. Þau hafa ítrekað að smíði nýrra orða yfir kvenkyns kynfæri sé hugsuð til að auðvelda heilbrigðisstarfsfólki að ná betur til hópa sem vilji ekki nota gömlu orðin um eigin líkama. Það sé alls ekki ætlunin að nýju orðin ýti þeim gömlu alfarið til hliðar.

Skima þurfi trans-karlmenn og aðra hópa, sem passa ekki í hina ríkjandi kynjatvíhyggju, sem hafa legháls fyrir leghálskrabbameini og með því að nota önnur orð yfir kynfærin geti það hjálpað til við að þessir tilteknu hópar skili sér betur í skimanir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Í gær

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein