fbpx
Miðvikudagur 29.október 2025
Pressan

Hún var gengin 20 vikur – Þá uppgötvaði hún hræðilegt leyndarmál eiginmannsins

Pressan
Fimmtudaginn 30. mars 2023 04:16

Mynd úr safni. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Georgia var gengin tuttugu vikur með barn sitt og átti að mæta í sónar. Eiginmaður hennar ætlaði með henni en mætti ekki á tilsettum tíma og hún náði ekki samband við hann klukkustundum saman. Ástæðan fyrir að hann fór ekki með henni í sónarinn var miklu verri en hana grunaði.

Þegar Georgia var komin heim ætlaði hún að hringja í eiginmanninn en í því kom hann heim. „Ég man að ég hugsaði: „Það er bara eitthvað sem passar ekki,““ sagði hún í The Project að sögn news.com.au.

Eiginmaðurinn sagði henni að síminn hans hefði orðið rafmagnslaus. „Ég hélt áfram að þrýsta á hann og að lokum sagði hann mér að hann hefði verið handtekinn,“ sagði hún.

Eftir meiri þrýsting játaði hann að hann hefði verið handtekinn vegna kynferðisbrota gegn börnum.

Eiginmaðurinn, faðir ófædds barns hennar, hafði setið og skrifast á við 14-15 ára stúlkur, að því að hann hélt, og beðið þær um að senda nektarmyndir. En stúlkurnar voru í raun lögreglumenn.

Hann var sakfelldur fyrir þetta og dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og til samfélagsþjónustu og verður á skrá yfir kynferðisbrotamenn næstu 15 árin.

Georgia skildi við hann og býr nú með syni þeirra en hún hefur fullt forræði yfir honum.

Hún sagðist óttast daginn sem hún þarf að segja syni sínum frá föður hans. „Ég reyni að vera ekki of gagnrýnin á fyrrum eiginmann minn, í þeim skilningi að ég reyni ekki að hafa áhrif á skoðun sonar míns á honum, ef þið skiljið hvað ég á við. Ég við að sonur minn geti tekið við staðreyndum, skilið staðreyndir og síðan tekið ákvarðanir sjálfur,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Forstjóri McDonald‘s opnar sig um það hversu oft hann borðar þar

Forstjóri McDonald‘s opnar sig um það hversu oft hann borðar þar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir þetta valda frjósemisvanda Pólverja og að ekki sé hægt að leysa hann með peningum

Segir þetta valda frjósemisvanda Pólverja og að ekki sé hægt að leysa hann með peningum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Norður-Kóreumenn sagðir stunda stórtækan þjófnað, peningaþvætti og að lauma sér í störf erlendis

Norður-Kóreumenn sagðir stunda stórtækan þjófnað, peningaþvætti og að lauma sér í störf erlendis
Pressan
Fyrir 5 dögum

Kynbomban segir sögusagnir um andlát sitt ótímabærar – „Mér líður vel“

Kynbomban segir sögusagnir um andlát sitt ótímabærar – „Mér líður vel“