fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Með því að fylgja þessum einföldu ráðum getur fertug manneskja lengt líf sitt um mörg ár

Pressan
Miðvikudaginn 6. desember 2023 22:00

Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fertugt fólk getur lengt líf sitt um mörg á með því að skipta vinsælum en óhollum matvælum út. Flestir vita vel hvaða matur er óhollur en nú hafa vísindamenn komist að því hversu mikið er hægt að lengja lífið með því að skipta þessum mat út fyrir hollari mat.

Það voru vísindamenn við háskólann í Bergen í Noregi sem rannsökuðu þetta og notuðust við gögn úr hinum svokallaða UK Biobank sem er gríðarstór breskur gagna/heilsufarsbanki. Notuðust þeir við gögn 467.354 Breta sem höfðu skráð matarvenjur sínar.

Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Nature Food og eru niðurstöðurnar skýrar. Ef þú ert meðal þeirra sem notast við neyslupýramída sem samanstendur aðallega af hvítu brauði, óhollum morgunmat, sykruðum gosdrykkjum og kýst að borða unnar kjötvörur á borð við beikon, pylsur, frosnar pítsur og tilbúna kjötrétti þá getur þú lengt líf þitt um mörg ár með því að snúa þér að hollara fæði.

Segja vísindamennirnir að mesti ávinningurinn náist með því að borða meira af grófu korni, hnetum og ávöxtum og minna af sætum drykkjarvörum og unnum kjötvörum.

Segja þeir að fertugur karlmaður geti lengt líf sit að meðaltali um 8,8 ár með þessari breytingu og að fertugar konur geti lengt líf sitt um 8,6 ár að meðaltali.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Rifja upp leikfangaeign Barron Trump eftir umdeild ummæli Bandaríkjaforseta

Rifja upp leikfangaeign Barron Trump eftir umdeild ummæli Bandaríkjaforseta
Pressan
Í gær

Leynilegar njósnaaðgerðir sýna hvernig Bandaríkin eru þegar farin að undirbúa innlimun Grænlands

Leynilegar njósnaaðgerðir sýna hvernig Bandaríkin eru þegar farin að undirbúa innlimun Grænlands
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Uppnám fyrir utan heimili Eddie Hall – „Ég ríf af þér hausinn“

Uppnám fyrir utan heimili Eddie Hall – „Ég ríf af þér hausinn“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump er enn að hella sér yfir blaðamenn – jafnvel þá sem eru með honum í liði

Trump er enn að hella sér yfir blaðamenn – jafnvel þá sem eru með honum í liði