fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Synti í sjónum með fimm ára dóttur sinni – Örskömmu síðar dundu ósköpin yfir

Pressan
Mánudaginn 4. desember 2023 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maria Fernandez Martinez Jimenez, 26 ára móðir, lést um helgina eftir að hákarl réðist á hana og beit af henni annan fótlegginn. Atvikið átti sér stað úti fyrir ströndum Melaque í Jalisco í Mexíkó.

Maria var að busla í sjónum með fimm ára gamalli dóttur sinni þegar hákarlinn réðst til atlögu. Að sögn sjónarvotta var hún aðeins tuttugu metrum frá ströndinni þegar atvikið varð og náðu nærstaddir að koma henni í land til að gera að sárum hennar.

Henni blæddi hins vegar út á skömmum tíma og var úrskurðuð látin þegar á sjúkrahús var komið. Dóttir hennar komst lífs af og án meiðsla og er það að líkindum Mariu að þakka. Þegar hún varð vör við hákarlinn náði hún að koma stúlkunni fyrir á flotholti.

Yfirvöld á svæðinu hafa gefið út viðvörun til strandgesta á svæðinu um að halda sig frá sjónum að sinni. Árásir hákarla úti fyrir ströndum Mexíkó eru tiltölulega sjaldgæfar. Í mars síðastliðnum var 10 þó ára drengur bitinn illa af hákarli úti fyrir ströndum Cancun. Engar hákarlaárásir voru tilkynntar á síðasta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Rifja upp leikfangaeign Barron Trump eftir umdeild ummæli Bandaríkjaforseta

Rifja upp leikfangaeign Barron Trump eftir umdeild ummæli Bandaríkjaforseta
Pressan
Í gær

Leynilegar njósnaaðgerðir sýna hvernig Bandaríkin eru þegar farin að undirbúa innlimun Grænlands

Leynilegar njósnaaðgerðir sýna hvernig Bandaríkin eru þegar farin að undirbúa innlimun Grænlands
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Uppnám fyrir utan heimili Eddie Hall – „Ég ríf af þér hausinn“

Uppnám fyrir utan heimili Eddie Hall – „Ég ríf af þér hausinn“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump er enn að hella sér yfir blaðamenn – jafnvel þá sem eru með honum í liði

Trump er enn að hella sér yfir blaðamenn – jafnvel þá sem eru með honum í liði