fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Ætla að rannsaka hugsanlegar aukaverkanir kórónuveirubóluefna á konur

Pressan
Föstudaginn 1. desember 2023 06:31

Mynd: Stjórnarráðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Evrópska aukaverkananefndin, sem hefur það hlutverk að rannsaka aukaverkanir af völdum lyfja, hefur hafið forrannsókn á svokölluðum „eftir tíðahvarfa blæðingum“ hjá konum, sem eru búnar með tíðahvörf. Markmiðið er að rannsaka hvort um hugsanlega aukaverkun sé að ræða af völdum bóluefna frá Pfizer/BioNTeck og Moderna gegn kórónuveirunni sem veldur COVID-19.

Nefndin hefur sent framleiðendunum fjölda spurninga sem þeir eiga að svara fyrir 3. janúar 2024.

Nefndin ákvað að gera þetta í kjölfar þess að norska lýðheilsustofnunin birti rannsókn þar sem kemur fram að tilfellum óvæntra blæðinga, hjá konum sem hafa lokið við tíðahvörf eða eru í hormónameðferð, fjölgaði í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

Aukaverkananefndin hefur áður komist að þeirri niðurstöðu að „miklar tíðablæðingar“ hjá konum, sem tíðahvörf eru ekki byrjuð hjá, geti verið hugsanleg aukaverkun af bóluefnum gegn kórónuveirunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu