fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Svaf hjá 300 á einu ári – Nú hefur hún sett sér nýtt markmið

Pressan
Miðvikudaginn 15. nóvember 2023 04:30

Annie Knight. Mynd:Annie Knight/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástralska OnlyFans-stjarnan Annie Knight, sem er 26 ára, öðlaðist sínar 15 mínútur af frægð í október þegar hún mætti í hlaðvarpið „The Kyle and Jackie O Show“. Þar skýrði hún frá því að hún hefði stundað kynlíf með 300 körlum og konum á einu ári.

Þessi ummæli hennar fóru á mikið flug, eins og var kannski ætlun hennar, og nú er hún aftur komin í sviðsljósið með nýju markmiði.

Það snýst ekki um að bæta „metið“ með því að stunda kynlíf með fleiri en 300 á einu ári. Nú ætlar hún sér að komast á eitt stefnumót í viku hverri næstu 52 vikurnar.

Í samtali við Daily Star sagði hún að hún hafi aldrei verið virk á stefnumótamarkaðnum. „Ég fór kannski á þrjú stefnumót á ári, það er ástæðan fyrir að ég ætla að gera þetta. Nú set ég mér þetta markmið og held mér við efnið með því að skrifa dóma um stefnumótin mín og birta á Internetinu,“ sagði hún og bætti við að hún sé nú búin að vera einhleyp í þrjú ár.

Ef þú hugsar þér nú gott til glóðarinnar og ætlar að skella þér til Ástralíu til að komast á stefnumót með Annie þá er rétt að nefna að hún segist vera mjög kröfuhörð á þessu sviði og aðeins fimm karlar hafi komist á stefnumót númer tvö með henni og aðeins tveir hafi fengið þriðja stefnumótið.

Hún sagði að eftir að hún skýrði frá fjölda bólfélaga sinna hafi hún fengið mikið af ógeðslegum skilaboðum, að margir hafi sagt hana „ógeðslega“ og að margir hafi lýst yfir hatri á henni. En þetta er eins og að skvetta vatni á gæs sagði hún því henni finnist hún vera sjálfsörugg þegar hún er búin að stunda kynlíf og að þegar hún var búin að sofa hjá 300 manns hafi henni fundist sem hún hafi styrkst mjög.

„Mér líður vel af kynlífi. Það er tilgangurinn að það á að láta þér líða vel,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Rifja upp leikfangaeign Barron Trump eftir umdeild ummæli Bandaríkjaforseta

Rifja upp leikfangaeign Barron Trump eftir umdeild ummæli Bandaríkjaforseta
Pressan
Í gær

Leynilegar njósnaaðgerðir sýna hvernig Bandaríkin eru þegar farin að undirbúa innlimun Grænlands

Leynilegar njósnaaðgerðir sýna hvernig Bandaríkin eru þegar farin að undirbúa innlimun Grænlands
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Uppnám fyrir utan heimili Eddie Hall – „Ég ríf af þér hausinn“

Uppnám fyrir utan heimili Eddie Hall – „Ég ríf af þér hausinn“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump er enn að hella sér yfir blaðamenn – jafnvel þá sem eru með honum í liði

Trump er enn að hella sér yfir blaðamenn – jafnvel þá sem eru með honum í liði