fbpx
Þriðjudagur 04.nóvember 2025
Pressan

James Webb geimsjónaukinn gæti fundið ummerki um líf á jörðinni frá öðru sólkerfi

Pressan
Laugardaginn 23. september 2023 14:00

James Webb geimsjónaukinn. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

James Webb geimsjónaukinn gæti séð ummerki um tilvist okkar hér á jörðinni ef hann væri að njósna um okkur frá öðru sólkerfi í Vetrarbrautinni.

Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar og vekja þær vonir um að sjónaukinn geti fundið samfélög á plánetum utan sólkerfisins okkar.

Live Science skýrir frá þessu og segir að frá því að sjónaukanum var skotið á loft 2021 hafi hann aðallega verið notaður til að rannsaka fjarlægustu hluta alheimsins til að leita að vísbendingum um hvernig alheimurinn varð til.

En það er einnig hægt að nota sjónaukann til að rannsaka lofthjúp fjarpláneta, leita að ummerkjum um gastegundir sem myndast af völdum lífvera sem og merki um að vitsmunaverur séu til á öðrum plánetum.

Þrátt fyrir að þetta sé fullkomnasti sjónauki sögunnar þá er enn óljóst hversu vel hann getur greint ummerki um vitsmunalíf. Af þeim sökum var rannsakað hvort hann gæti greint ummerki um vitsmunalíf á jörðinni en það er eina plánetan sem við vitum um þar sem er líf.

Niðurstöður rannsóknarinnar eru að sjónaukinn myndi líklega greina helstu ummerkin um vitsmunalíf og annað líf í lofthjúp jarðarinnar. Getur sjónaukinn hugsanlega greint ummerki um líf í allt að 50 ljósára fjarlægð frá jörðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Sá eftir glæpnum áratugum síðar og skilaði hinum látna

Sá eftir glæpnum áratugum síðar og skilaði hinum látna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Starfsmaður veitingastaðar dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir ógeðslegt athæfi

Starfsmaður veitingastaðar dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir ógeðslegt athæfi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ætlaði að koma fyrrverandi kærustunni á óvart og faldi sig inn í skáp – Það endaði með blóðbaði

Ætlaði að koma fyrrverandi kærustunni á óvart og faldi sig inn í skáp – Það endaði með blóðbaði
Pressan
Fyrir 5 dögum

Læknar voru sannfærðir um að hann væri á eiturlyfjum, þangað til þeir kíktu í eyrað á honum

Læknar voru sannfærðir um að hann væri á eiturlyfjum, þangað til þeir kíktu í eyrað á honum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Tekinn af lífi fyrir hrottalegt morð á nágranna sínum – Svona leit síðasta máltíðin hans út

Tekinn af lífi fyrir hrottalegt morð á nágranna sínum – Svona leit síðasta máltíðin hans út
Pressan
Fyrir 6 dögum

Ætlar að senda eftirlitsmenn til að fylgjast með eftirlitsmönnum

Ætlar að senda eftirlitsmenn til að fylgjast með eftirlitsmönnum