fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Pressan

Þjóðverjar eru hneykslaðir – Maður myrti eiginkonu sína og nú verður ungum börnum þeirra vísað úr landi

Pressan
Mánudaginn 11. september 2023 04:06

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýsk yfirvöld hafa tekið þá ákvörðun að fjórum börnum verði vísað úr landi þar sem dvalarleyfi þeirra hafi verið tengt dvalarleyfi foreldra þeirra.  En móðir þeirra er látin því faðir þeirra myrti hana í október á síðasta ári.

Fjölskyldan er frá Víetnam. Foreldrarnir ráku veitingastað í Bad Schwartau nærri Lübeck. Það var þar sem fjölskyldufaðirinn myrti eiginkonu sína fyrir framan börnin fjögur.

Hann er faðir yngstu barnanna tveggja, sem eru 3 og 4 ára, og stjúpfaðir 8 ára drengs og 12 ára stúlku. Hann var dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir morðið.

Samkvæmt ákvörðun yfirvalda á að senda börnin til Víetnam. SHZ skýrir frá þessu og hefur eftir Timo Gaarz, æðsta embættismanninum í Bad Schwartau, að búið sé að fara vel í gegnum málið og niðurstaðan sé að það þjóni hagsmunum barnanna best að leyfa þeim að alast upp hjá ættingjum sínum í Víetnam, í þarlendri menningu og tungumálaumhverfi.

Börnin fjögur eru nú í umsjá fósturfjölskyldna í Bad Schwartau, nærri hvert öðru. Það er kannski engin furða að fósturfjölskyldunum er illa brugðið vegna málsins. „Börnin hafa alist upp hér og tala ekki eitt orð í víetnömsku. Það á að koma þeim fyrir hjá ókunnugu fólki í framandi menningarheimi,“ sagði Gabi Roks, fósturmóðir átta ára drengsins.

Fósturfjölskyldurnar hafa hrundið undirskriftasöfnun af stað til að reyna að hafa áhrif á ákvörðun yfirvalda. Nú þegar hafa tugir þúsunda skrifað undir hana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?
Pressan
Fyrir 2 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún hélt að dóttirin hefði dottið og meitt sig – Síðan fór húðin að rotna

Hún hélt að dóttirin hefði dottið og meitt sig – Síðan fór húðin að rotna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún borðaði hafragraut daglega í einn mánuð – Þetta voru áhrifin

Hún borðaði hafragraut daglega í einn mánuð – Þetta voru áhrifin
Pressan
Fyrir 3 dögum

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu