fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Lundúnarbúa meinað að standa nálægt ókunnugum konum eftir hann var gripinn glóðvolgur

Pressan
Miðvikudaginn 17. maí 2023 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmanni í Lundúnum í Bretlandi hefur nú verið meinað að standa of nálægt konum sem hann þekkir ekki eftir að lögregla stóð hann að verki við að brjóta á skólastúlku í neðanjarðarlestinni.

Óeinkennisklæddir lögreglumenn sáu manninn, Abdulrizak Ali Hersi, ráðast á stúlkuna þegar hún steig inn í lestina með fjölskyldu sinni í október. Ekki hafa fjölmiðlar greint frá því í hverju brot Hersis fólust en mun það hafa verið kynferðisbrot. Sáu lögreglumenn þó til hans áður en stúlkan og fjölskylda hennar höfðu áttað sig á því sem var að gerast.

Lögreglumenn gripu Harsi og drógu hann með sér út úr lestinni. Hann var svo í kjölfarið handtekinn og dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Dómari gekk þó lengra en það heldur dæmdi á hann 10 ára úrskurð á grundvelli laga um forvarnir gegn kynferðisbrotum, en í þessum úrskurði felst að Hersi má ekki af ásetningi standa fyrir aftan eða við hliðina á konu eða stúlku, sem hann ekki þekkir, á almannafæri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér