Sheila Keen-Warren, 59 ára bandarísk kona, hefur játað að hafa skotið Marlene Warren, eiginkonu ástmanns síns, til bana í Flórída þann 26. maí árið 1990.
Morðið var óhugnanlegt en umræddan dag var dyrabjöllunni á heimili Marlene hringt. Hún fór til dyra og fyrir utan húsið stóð kona í trúðabúningi með blóm og litríkar blöðrur með áletrun á borð við: „Þú ert best“.
Konan í trúðabúningnum beið ekki boðanna heldur dró upp skammbyssu og skaut Marlene í andlitið. Marlene lést í skotárásinni og í kjölfarið hófst rannsókn lögreglu sem átti eftir að kosta mikið púður.
Það var árið 2017 að Sheila var handtekin og ákærð vegna gruns um morðið en hún hafði átt í leynilegu ástarsambandi með eiginmanni Marlene, Michael Warren.
Lögreglan komst að því fljótlega eftir morðið að Marlene og Michale, sem voru vinnufélagar, höfðu átt í leynilegu ástarsambandi en lögregla taldi sig ekki hafa næg sönnunargögn í málinu. Þrátt fyrir grun var Sheila því aldrei handtekin eða ákærð vegna málsins.
Flest benti til þess að málið myndi aldrei leysast en árið 2014 hófst rannsóknin á nýjan leik. Það sem tengdi Sheilu við morðið voru niðurstöður DNA-rannsóknar sem þótti sýna að hún hefði verið á vettvangi þegar morðið var framið.
Réttarhöld yfir Sheilu hafa staðið yfir að undanförnu en í gær var kveðinn upp tólf ára fangelsisdómur yfir henni eftir að hún náði samkomulagi við saksóknara. Tekið var tillit til þeirra sex ára sem Sheila hefur þegar afplánað frá árinu 2017.
Í frétt Palm Beach Post kemur fram að Sheila gæti losnað úr fangelsi snemma á næsta ári, eða eftir tíu mánuði, vegna góðrar hegðunar í fangelsinu og þeirrar staðreyndar að rúm 30 ár eru liðin frá morðinu.
Lögmaður hennar, Greg Rosenfeld, segir að Sheila hafi gert samkomulag um að játa á sig morð af annarri gráðu af ótta við að saksóknarar færu fram á dauðarefsingu yfir henni.