fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Pressan

Lifði af helförina en tapaði öllu eftir að hann kynntist svikakvendi á stefnumótaforriti

Pressan
Föstudaginn 27. janúar 2023 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin 36 ára Peaches Stergo hefur verið handtekin og er sökuð um að hafa svikið fé út úr 87 ára gömlum manni í gegnum svo kallað „rómantíkur svindl“ eða romance scam eins og það er kallað á ensku.

Samkvæmt ákæru í málinu sem var opinberuð í vikunni er talið að Stergo hafi á tímabilinu 2017-2021 svikið rúmlega 400 milljónir frá manninum, sem var hans ævisparnaður. Hún kynntist manninum í gegnum stefnumótasíðu. Það var svo árið 2017 sem hún bað hann um að lána sér pening svo hún gæti borgað lögmanni sem væri að gæta hagsmuna hennar í skaðabótamáli vegna meiðsla sem hún hafði hlotið.

Og þar með var blekkingavefurinn hafinn. Í gegnum næstu árin heimtaði hún að maðurinn legði inn á hana fé. Hún sagði að ef hann gerði það ekki þá yrðu reikningar hennar frystir og þá gæti hún aldrei borgað honum til baka. Til að gera lygina sannfærandi stofnaði Stergo falskan tölvupóst til að þykjast vera starfsmaður í banka. Hún bjó einnig til fölsuð bréf sem áttu að vera frá bankastarfsmanni sem og falsaðar kvittanir.

Maðurinn var þarna kominn í slæma stöðu. Hann hafði lagt allt sitt lausafé inn á konuna og neyddist til að losa sig við íbúðina sína. Á meðan lifði STERGO lúxuslífi á peningunum sem hún hafði svikið út úr manninum. Hún keypti sér dýra fasteign, bát, rándýr ferðalög þar sem hún gisti á fimm stjörnu hótelum, og eyddi svo gífurlegum fjárhæðum í dýran mat, gull, skartgripi, úr og hátískufatnað úr búðum á borð við TiffanyRalph LaurenNeiman Marcus, Louis Vuitton og Hermes.

Það var svo árið 2021 sem maðurinn treysti syni sínum fyrir því að hann hefði lagt aleiguna sína inn á Stergo í þeirri trú að hún myndi greiða honum til baka. Sonurinn áttaði sig strax á því að faðir hans hefði verið féflettur og hafði samband við lögreglu.

Verði Stergo sakfelld fyrir brot sín á hún yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi. Ákæruvaldið hefur farið fram á að lagt verði hald á allar eigur Stergo sem gætu hafa verið keyptar ávinningi meintra brota henar.

Saksóknarinn Damian Williams segir í tilkynningu frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu: „Því er haldið fram að árum saman hafi Stergo blekkt 87 ára þolanda helfararinnar og með meinfýsi hreinsað burt ævisparnað hans svo hún gæti orðið milljónamæringur með sviksamlegum hætti. Stergo falsaði skjöl og þóttist vera starfsmaður í banka í skiptum fyrir líf fullt af munaðarfullum ferðalögum, rolex-úrum og lúxus kaupum. Handtakan í dag sýnir enn og aftur þá áherslu sem þetta embætti leggur á að ná fram réttlæti fyrir þolendur fjársvika.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Nú er það svart – Giftu sig í kirkjugarði í þema Addams fjölskyldunnar

Nú er það svart – Giftu sig í kirkjugarði í þema Addams fjölskyldunnar
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja þetta vera eina dýrið sem gæti lifað heimsendi af

Vísindamenn segja þetta vera eina dýrið sem gæti lifað heimsendi af
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir deilir góðum ráðum til að léttast án þess að þjást

Læknir deilir góðum ráðum til að léttast án þess að þjást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er besta sætið í flugvélum og samt vill enginn sitja þar

Þetta er besta sætið í flugvélum og samt vill enginn sitja þar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrir 50 árum var ungri móður nauðgað og hún myrt þegar hún var á ferð með dóttur sinni – Núna liggur fyrir hver morðinginn er

Fyrir 50 árum var ungri móður nauðgað og hún myrt þegar hún var á ferð með dóttur sinni – Núna liggur fyrir hver morðinginn er
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sakfelldir fyrir að fella eitt frægasta tré Bretlands í skjóli nætur – Þurfa að dvelja í varðhaldi út af reiði almennings

Sakfelldir fyrir að fella eitt frægasta tré Bretlands í skjóli nætur – Þurfa að dvelja í varðhaldi út af reiði almennings