Jeff Etherington, 65 ára, var á leiðinni heim frá spítalanum þegar hann ákvað að kaupa sér lottómiða í stórmarkaðnum Sainsbury’s. Etherington hafði verið á fundi með lækni og rætt við hann um aðgerð sem hann þarf að fara í á hnénu sínu. BBC greinir frá.
Skömmu eftir spítalaferðina var svo dregið í lottóinu og Etherington vann 500 þúsund pund, rúmar 89 milljónir í íslenskum krónum.
Þrátt fyrir að hafa unnið þann stóra ætlar Etherington sér að halda áfram í vinnunni sinni en það þýðir ekki að hann ætli sér ekki að gera neitt með vinninginn. Hann ætlar nefnilega að nýta hann til að giftast loksins unnustu sinni, hinni 60 ára gömlu Kim Read.
„Ég hef alltaf trúað því að einn daginn myndi ég vinna þann stóra,“ segir Etherington.
Hann segir örlögin hafa ráðið því að hann vann vinninginn. „Ef ég hefði ekki skipt á vöktum fyrir þessa spítalaferð þá hefði ég ekki keypt miðann á nákvæmlega þessu augnabliki og einhver önnur heppin manneskja væri að fagna í staðinn fyrir mig.“
Etherington og Read eiga samanlagt fimm börn og átta barnabörn en þau hafa verið saman í sex ár. „Við vissum alltaf að við myndum giftast að lokum en peningurinn fór alltaf í eitthvað annað. Nú getur þetta brúðkaup loksins orðið að veruleika.“