fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Vísindamenn vara við útrýmingu tegunda – Hér eru 94% allra tegunda horfnar

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 22. október 2022 07:30

Eldar í Amazon.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á síðustu fimmtíu árum hafa allt að 70% dýrategunda horfið af yfirborði jarðar.  Það er því ekki bjart útlit fyrir lífið hér á jörðinni. Vísindamenn hafa áður komist að þeirri niðurstöðu að við séum nú í miðju sjötta fjöldadauðatímabilinu.

The Guardian segir að þetta taki alþjóðlegur hópur 89 vísindamanna undir í nýrri rannsókn og hvetji þjóðarleiðtoga til að gera meira fyrir líffræðilegan fjölbreytileika.

The Guardian segir að vísindamennirnir telji að verst sé staðan í Suður-Ameríku, Karíbahafi og í Amazonskóginum. Þar hafi allt að 94% dýrategunda horfið síðustu 48 árin.

Þar á eftir kemur Afríka þar sem 66% tegunda hafa horfið.

„Þrátt fyrir vísindin, hörmulegar niðurstöður útreikninga, ástríðufullar ræður og loforð, brennandi skóga, sökkvandi lönd, methita og milljónir manns á flótta, þá halda heimsleiðtogar áfram að halla sér aftur og horfa á framtíðina brenna fyrir augum okkar,“ sagði Tanya Steele, forstjóri náttúruverndarsamtakanna WWF.

Vísindamennirnir segja að meðal annars megi rekja vandann til þess að dýr eiga erfitt með að komast um landsvæði vegna mannvirkja og landbúnaðar.

Sem dæmi má nefna að aðeins 37% af þeim ám heimsins, sem eru lengri en 1.000 km, renna óhindrað alla leið og aðeins 10% friðaðra svæða í heiminum eru tengd saman.

Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Biological Reviews.

Í henni kemur fram að fyrstu fimm fjöldadauðatímabilin megi rekja við veðurs og annarra náttúrufyrirbæra. En að þessu sinni bendi allt til þess að fjöldadauðinn sé okkur mönnunum að kenna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér