

Sky News skýrir frá þessu og segir að rannsóknin, sem hefur verið birt í Current Archaeology, sýni að fólkið kom að stærstu hluta frá norðanverðri Evrópu, aðallega Þýskalandi, Danmörku og Hollandi.
Niðurstöðurnar ganga gegn viðteknum hugmyndum um að forfeður Englendinga hafi búið saman í litlum hópum.
Rannsóknin bendir til þess að mikill fjöldi fólks hafi streymt til Bretlands frá meginlandinu og jafnvel allt frá vestanverðri Afríku á Miðöldum.
Duncan Sayer, sem vann að rannsókninni og er fornleifafræðingur við University of Central Lancashire, sagði að niðurstöðurnar séu áminning um að forfeðurnir hafi ekki búið í litlu þorpi þar sem allir dönsuðu í kringum maístöng. Niðurstöðurnar geti breytt skilningi okkar á Englandi til forna og sýni hversu mikilvægu hlutverki innflytjendur hafi gegnt.
DNA-sýni voru tekin úr 460 beinagrindum í gröfum sem voru teknar frá því 200 fyrir krist til 1300 eftir krist.