fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Stúlkan var grindhoruð, skelfingu lostin og með rafmagnshálsól – Hún var sú heppna en hvar eru hinar?

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Föstudaginn 21. október 2022 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 7. október, rétt fyrir klukkan átta að morgni, síðastliðin var bankað á dyr snemma morgun hjá eldri konu, búsettri í Excelsior Springs, 10 þúsund manna bæ í Missouri. 

Fyrir utan dyrnar stóð ung grindhoruð kona sem var augljóslega frá sér af ótta og grátbað um hjálp. Unga konan var að mestu nakin, þó í einhvers konar undirfatnaði úr latex, og með rafmagnshálsól eins og notuð er við þjálfun hunda. Gamla konan hringdi strax á lögreglu. 

Hryllingshúsið.

Haldið nauðugri í mánuð

Konan, sem hefur ekki verið nefnd af yfirvöldum en er sögð 22 ára, sagðist hafa sloppið frá manni sem hefði haldið henni fanginni í mánuð. Hefði hún notað tækifærið þegar að maðurinn fór með átta ára son sinn í skólann. 

Sagðist hún hafa sloppið með því að ná af sér límbandi sem hafði verið sett yfir munn hennar. Nagaði hún því næst límbandið sem hélt saman höndum hennar og náði í kjölfarið að losa sama límband af fótum sér. 

Hún leysti einnig vannærðan og illa farin hund mannsins úr fjötrum sínum og rauk vesalings dýrið á dyr. 

Þegar að lögregla keyrði ungu konuna á sjúkrahús benti hún út um gluggann og benti á húsið sem henni hafði verið haldið fanginni í, nánar tiltekið í kjallaranum. 

Miklir áverkar

Sérsveit var kölluð út og umkringdi hún húsið sem reyndist í eigu hins fertuga Timothy M. Haslett.

En í ljós kom að hann var reyndar þegar í haldi, hann hafði verið stöðvaður fyrir umferðarlagabrot og þegar að lögregla fletti honum upp komí ljós að það var útistandandi handtökubeiðni á hann. 

Var það vegna ítrekaðra brota á lögum um dýravernd en nágrannar mannsins höfðu margoft haft samband við yfirvöld vegna meðferðar Haslett á hundi sínum. 

Timothy Haslett

Stúlkan sagði Timothy hafa margoft nauðgað sér. Hann hýddi hana einnig með leðuról og hótaði að drepa hana ef hún reyndi flótta.

Sár og aðrir áverkar á konunni staðfestu frásögn hennar auk þess sem ólar, reipi, handjárn og skotvopn fundust á heimili Timothy. 

Síðar sama dag var Timothy Haslett formlega ákærður fyrir fjölda brota gegn konunni, meðal annars mannrán, nauðganir, líkamsárásir, árásir með banvænu vopni og sitthvað fleira. 

Umbreyttist við Covid

Timothy Haslett ólst upp í 600 manna smábæ í Illinois. Hann kvæntist árið 2013, eignaðist son ári síðar og skildi 2015. Fékk hann fullt forræði yfir drengnum og var konu hans gert að greiða honum 400 dollara á mánuði í meðlag, eða tæpar 60 þúsund krónur íslenskar. 

Timothy var járnbrautastarfsmaður en missti vinnuna vegna Covdið-19 árið 2019. Síðan þá hefur hann tekið að sér alls kyns smáræði við viðgerðir og annað slíkt í verktakavinnu. 

Nágrannar Timothy hafa lýst honum sem ,,furðufugli” sem aldrei talaði við nokkurn mann. Fjölmiðlar höfðu samband við Facebook vini hans sem sögðu hann hafa ,,snappað” við að missa vinnuna við járnbrautirnar. 

Timothy með syni sínum. Vinir hans segja hann hafa umbreyst eftir uppsög n í Covid.

Áður mun hann hafa haft fallegar myndir af sér og syni sínum að gera skemmtilega hluti saman en eftir uppsögnina hurfu slíkar myndir og við tóku gífuryrði sem flest voru niðrandi og rasísk um allt og alla. Gömlum vinum var einnig brugðið við að sjá handtökumyndina af Timothy og sögðu þetta ekki sama mann og áður. 

Leitað að líkum

Timothy var með fjölda umferðarlagabrota á skrá en að öðru leyti hreina sakaskrá. Hann lýsti sig saklausan og situr nú í gæsluvarðhaldi þar til vitnaleiðslur hefjast í desember. 

Vitað er að fórnarlambið hafði sagt lögreglu að hún hefði ekki verið ein, það hefðu verið tvær aðrar stúlkur með henni í haldi og hefði Timothy myrt þær báðar. 

Húsið er nú lokað af og stendur yfir uppgröftur í og við húsið auk þess sem leitarhundar, sem eru þjálfar í leit að mannslíkum, hafa verið fengnir að húsinu. 

Lögregla hefur ekki gefið upp um hvort lík hafi fundist. 

Fjöldamorðingi?

Málið hefur vakið upp viðkvæmar umræður í þessum litla bæ. Biskupinni 

Tony Caldwell, sem er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum, segir yfirvöld hafa vitað af hvarfi ungra, svartra kvenna. Hann setti meira að segja myndskeið á samfélagsmiðla um miðjan september þar sem hann hvatti yfirvöld til að kannan nánar hvörf þriggja ungra kvenna.

Fullyrðir biskupinn að allar hafi þær verið fórnarlömb morðingja.

Lögreglan í bænum víðasi ásökum biskups um áhugaleysi um hvörfin á bug og sagði að um væri að ræða misskilning. Ekki hafi borist neinar tilkynningar um hvörf á konum. Reyndar hafi engar tilkynningar um mannshvörf borist í langan tíma.

,,Við getum ekkert gert ef að hvarf á einstaklingi er ekki tilkynnt,” sagði lögreglustjóri bæjarins við fjölmiðla

En málin horfa öðruvísi við eftir að unga konan slapp frá Timothy Haslett. Henni var rænt úr sama hverfi og hinar stúlkurnar bjuggu í og segir biskupinn í bæði skiptin hafi vitni séð stúlkurnar ræða við karlmann. Sá sé skuggalega líkur Timothy Haslett. 

Fjöldi löggæslumanna er nú við leit í og við húsið.

Biskupinn segist þakklátur fyrir að unga konan bjargaðist en harmi að yfirvöld hafi ekki tekið málin fyrr alvarlega. 

,,Ef að satt reynist að ungar stúlkur hafi í raun verið myrtar er það skelfilegt,” 

Rannsókn málsins stendur enn yfir og eru engar tilkynningar um framgang gefnar út, að svo komnu máli. 

Hvort Timothy Haslett í raun morðingi, jafnvel fjöldamorðingi, á eftir að koma í ljós á næstu mánuðum. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu
Pressan
Í gær

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu