fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Pabbi Jeffrey Dahmer æfur út í Netflix og hótar málsókn – ,,Glæpirnir sýndir í töfraljóma og sama manneskjan stórgræðir“

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Föstudaginn 21. október 2022 22:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Faðir fjöldamorðingjans og mannætunnar Jeffrey Dahmer, Lionel Dahmer, íhugar alvarlea að lögsækja Netflix í kjölfar þáttaraðarinnar um son hans, sem nýtur nú gríðarlegra vinsælda.

Jeffrey Dahmer við réttarhöldin.

Lionel, sem nú er 86 ára, segir að enginn frá Netflix hafi haft samband við hann um gerð þáttanna, ,,DahmerMonster: The Jeffrey Dahmer Story,“ að sögn talsmanns hans.

Lionel er einnig afar ósáttur við að streymisrisinn hafi ekki óskað eftir leyfi til að nota upptökur sem gerðar voru fyrir heimildaþáttaröðina, ,,Conversations With A Killer: The Jeffrey Dahmer Tapes.”

Vill bara frið og ró

Lionel býr í litlum bæ í dreifbýli í Ohio, þar sem hann vill njóta síðustu áranna í frið og ró. Aftur á móti hafi þættirnir gert hann að ,,taugahrúgu” og streyma áhugasamir að heimili hans i von um að ná af honum mynd.

Hefur hann neyðst til þess að loka eign sín af og setja upp skilti sem banna aðgengi.

Talsmaður þorir ekki að koma fram undir nafni og í viðtal við við U.S. Sun kallar hann sig ,,Jeb“ af ótta að við að verða fórnarlamb ofbeldis, eða jafnvel myrtur, vegna vináttu sinnar við Lionel.

Lionel segist vera taugahrúga og hræddur um líf sitt.

Bæði Jeb og Lionel ganga nú um með skotvopn vegna hótana sem borist hafa í kjölfar sjónvarpsefnisins. Segist Jeb þegar hafa hent rúmlega 500 bréfum sem innihaldi svívirðingar og jafnvel líflátshótanir í garð Lionel.

Og eftir samtöl við lögfræðinga og útgefendur bókar, sem Lionel skrifaði um son sinn, telur Jeb afar líklegt að Lionel fari í mál við framleiðsluteymi beggja þátta. ,,Þeim er alveg sama um hann,” segir Jeb í viðtalið við U.S. Sun.

Skáldaleyfi og hreinar lygar

Lionel Dahmer varð þekktur eftir að hryllingsverk sonar hans komu í ljós árið 1991. Tæpum þremur mánuðum síðar kom út bókin ,,A Father’s Story sem fjallar um barnæsku og unglingsár Jeffrey, út frá sjónarhóli Lionel.

Aðeins nokkrum mánuðum síðar var Jeffrey barinn til bana af samfanga sínum. Hann var 34 ára.

Í bókinni kemur fram að Lionel hafi ekki haft hugmynd um þau 17 morð á ungum mönnum sem sonur hans framdi, hvað þá vitað um þær misþyrmingar sem ungu mennirnir urðu fyrir.

Jeffrey Dahmer sundurlimaði mörg fórnarlömb sín, varðveitt líkamsleifar þeirra og át hluta þeirra.

Serían er sú næstvinsælasta á Netflix, á eftir þáttunum Stranger Things

Jeb segir Lionel sýndan í röngu og ósanngjörnu ljósi í þáttunum. Hann hafi verið umhyggjusamur faðir sem hafi reynt sitt besta við uppeldi sonar síns á erfiðum tíma í lífi fjölskyldunnar.

Lionel telji einnig að Netflix hefði aldrei átt að framleiða seríuna. Allar upplýsingar um morðin séu löngu komnar fram og Lionel hafi þegar sagt sögu sína með bókinni.

Ennfremur segir Jeb að það sé þeirra skoðun að glæpir Jeffrey séu sýndir í eins konar töfraljóma og litið fram hjá staðreyndum mála. Þess í stað veiti Netflix sér skáldaleyfi til að gera senur sem blási upp smáatriði eða séu jafnvel ekki byggðar á staðreyndum.

Jeb segir, að þvert á móti því sem margir telji, hafi Lionel aldrei grætt krónu á glæpum sonar síns.  Hann hafi þvert á mót þurft að greiða háar upphæðir, bæði til lögfræðinga svo og til sjálfum sér og fjölskyldu til verndar.

Græddi ekkert 

Jeb segir margar lygasögur í gangi, til dæmis að Lionel hafi selt gleraugu sonar síns fyrir 150 þúsund dollara, eða rúmlega 22 milljónir íslenskra króna. Það sé aftur á móti hrein og klár lygi.

Hann viðurkennir að aðstandendur fórnarlambanna hafi verið Lionel reiðir fyrir skrif bókarinnar og telur að sömu aðilar séu nú að dreifa sögum um að Lionel sé enn og aftur að græða, og nú á gerð sjónvarpsefnis.

Það sé rangt og hafi Lionel aldrei hitt neinn sem að þáttunum eða heimildmyndaseríunni komu.

Evar Peters í hlutverki Jeffrey Dahmer. Hefur hann hlotið mikið lof fyrir leik sinn.

Jeb er einnig reiður að myndskeið af Jeffrey séu notuð í heimildamyndaþáttunum ,,Conversations With A Killer: The Jeffrey Dahmer TapesLionel hafi aldrei gefið leyfi fyrir að þau væru sýnd almenningi.

Jeb segir að það sé aftur á móti ein manneskja sem hafi stórgrætt.

,,Lögfræðingur Jeffrey hafði aðstoðarkonu sem sá um að taka upp alla þeirra fundi. Hún tók afrit af öllu og átti gríðarlegt magn af hljóð- og myndbandsupptökum sem hún seldi hæstbjóðanda án þess að bera það nokkurn tíma undir Lionel

Þetta getur ekki gengið lengur nú erum við komnir með teymi lögfræðinga og hyggjum á málsóknir á hendur nokkurra aðila, ekki síst Netflix.“ 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér