fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Hrottalegt mál skekur Bandaríkin – Lík fjögurra hjólreiðamanna fundust sundurhlutuð

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 19. október 2022 07:58

Fjórmenningarnir sem voru myrtir. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef unnið við rúmlega 80 morðmál á ferli mínum. Ég hef unnið að morðmálum þar sem fórnarlömbin eru fleiri en eitt. Ég hef unnið við mál þar sem líkin hafa verið hlutuð í sundur. Ég get ekki sagt að ég hafi aldrei unnið við mál sem er eins slæmt og þetta, en þetta er á listanum yfir þau verstu.“

Þetta sagði Joe Prentice, lögreglustjóri í Okmulgee í Oklahoma, um morðið á fjórum hjólreiðamönnum. New York Post skýrir frá þessu.

Lík fjórmenninganna fundust í Deep Fork River í Oklahoma í síðustu viku. Þá hafði verið lýst eftir þeim eftir að þeir hurfu sporlaust þegar þeir fóru í hjólreiðaferð sunnudaginn 9. október.

Mennirnir hétu Mark Chastain, 32 ára, bróðir hans Billy Chastain, sem var þrítugur, Mike Sparks, 32 ára og Alex Stevens, 29 ára.

Lögreglan segir að þeir hafi verið skotnir til bana og lík þeirra síðan hlutuð í sundur. Hvorki morðvopnið né reiðhjól fjórmenninganna hafa fundist.

Á fréttamannafundi sagði Prentice að lögreglan telji að fjórmenningarnir hafi ætlað að fremja afbrot þegar þeir hurfu. Hann sagði að þetta sé byggt á framburði vitnis sem hafi sagt að mennirnir hafi verið á leið til að verða sér úti um peninga á ólögmætan hátt.

Rannsókn lögreglunnar hefur leitt hana á slóð bílapartasala eins. Á starfsstöð hans fann lögreglan ummerki um „ofbeldisfullan atburð“. En bílapartasalinn er horfinn og leitar lögreglan hans nú.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér