fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Fundu farsíma í fangaklefa – Gegndi stóru hlutverki í ótrúlegu máli

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 19. október 2022 22:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður á að nota tíma sinn skynsamlega. Það var kannski það sem Arthur Lee Cofield, 31 árs, hugsaði með sér eftir að hann hóf afplánun 14 ára dóms í bandarísku fangelsi.

Við leit í klefa hans fundu fangaverðir farsíma sem hafði verið smyglað inn í fangelsið. Við rannsókn málsins kom í ljós að Cofield hafði notað símann til að hringja í banka einn. Hann sagðist vera milljarðamæringurinn Sidney Kimmel og vildi opna reikning. Til að hann gæti gert það þurfti hann að senda bankanum skilríki og afrit af reikningi á hans nafni, það er að segja nafni Kimmel.

Lögreglan segir að Cofield hafi fengið vitorðsmann sinn til að senda sér myndir af skilríkjum og reikningi á nafni Kimmel. Þetta voru svo vel gerðar falsanir að þær dugðu til að fá bankann til að millifæra 11 milljónir dollara, það svarar til um 1,6 milljarða íslenskra króna, til kaupmanns sem selur svokallaða American Eagle gullmynt. Cofield keypti 6.106 eintök.

Því næst er hann sagður hafa fengið öryggisfyrirtæki til að flytja myntina og síðan setti hann sig í samband við húseiganda einn og bauð honum sem svarar til rúmlega 600 milljóna íslenskra króna fyrir hús hans. Þessu boði tók húseigandinn. Cofield reiddi útborgunina fram og í desember 2020 greiddi hann afganginn af kaupverðinu.

Hann hefur nú verið ákærður fyrir fjársvik og samsæri í tengslum við það, þjófnað á persónuupplýsingum, peningaþvætti og samsæri um peningaþvætti.

Hann neitar sök.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu