fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Barnshafandi slökkviliðskona lenti í árekstri – Bjargaði bílstjóra og ól síðan barn sitt

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 18. október 2022 21:00

Myndir frá vettvangi. Mynd:Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinnufélagar Megan Warfield hjá Bowleys Quarters Volunteer slökkviliðinu í Maryland í Bandaríkjunum tóku nýlega hatt sinn ofan í virðingarskyni við Warfield sem þeir segja vera „sannan þjón almennings“.

Warfield var barnshafandi og átti aðeins viku eftir af meðgöngunni þegar hún lenti í umferðarslysi. Henni tókst að komast út úr skemmdri bifreið sinni og fara beint til hins ökumannsins sem var fastur í bifreið sinni sem hafði oltið.

Hún veitti honum fyrstu hjálp og beið hjá honum þar til viðbragðsaðilar komu á vettvang og losuðu hann úr bílnum.

NBC 15 segir að Warfield hafi verið skoðuðu af læknum á vettvangi og úrskurðuð ómeidd. Tæpum 24 klukkustundum síðar kom dóttir hennar í heiminn.

Á Facebooksíðu Bowleys Quarters Volunteer slökkviliðsins var birt færsla um þetta og Warfield hrósað í hástert fyrir að vera „sannur þjónn almennings“. Hún hafi brugðist við af hetjuskap og ósérhlífni.

Hún hafi nýlokið við að skipuleggja og sjá um golfmót í minningu föður síns þegar hún lenti í umferðarslysinu. Hún hafi ekki látið það halda aftur af sér að hún gæti meiðst og strax komið hinum ökumanninum til aðstoðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu