

Lögreglan sendi frá sér tilkynningu í síðustu viku um að henni hefði loks tekist að handtaka meintan morðingja eftir áratuga langa rannsókn.
Hinn handtekni heitir Michael Anthony Louise og er 79 ára. Hann var handtekinn á heimili sínu í Syracuse í New York og var úrskurðaður í gæsluvarðhald þar í ríki á meðan unnið er að framsali hans til Vermont.

CNN skýrir frá þessu og segir að Louise hafi verið kvæntur einni dætra hjónanna þegar þau voru myrt. Grunur féll á hann aðeins tveimur vikum eftir morðin en lögreglunni tókst ekki að tengja hann við þau.
Í maí 2020 leiddi DNA-rannsókn, á blóðdropa, sem fannst í bíl hans í ljós að hann var úr George. Blóðið hafði áður verið rannsakað en niðurstaðan hafði ekki verið afgerandi en vegna tækniframfara tókst nú að fá afgerandi niðurstöðu að sögn lögreglunnar.