fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Parið gerði húsið sitt upp – Það sem þau fundu undir gólfinu breytti öllu

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 16. október 2022 22:00

Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marga dreymir um að finna eitthvað magnað þegar þeir skipta um gólfið heima hjá sér, að fjársjóður leynist undir gólffjölunum. Fyrir breskt par þá varð þetta meira en bara draumur því þetta gerðist þegar þau voru að gera endurbætur á húsinu sínu.

Parið var að gera endurbætur á húsinu sínu, sem er í Ellerby í North Yorkshire á Englandi. Þegar þau rifu gólfin upp fundu þau fjársjóð frá Miðöldum og hann er mikils virði. Þetta kom þeim mjög á óvart því húsið er ekki sérstaklega gamalt.

Þegar parið kom niður í gegnum gólfið og steypulag fann það fjársjóðinn. Hann var í litlum kassa. Þegar þau opnuðu hann trúðu þau ekki eigin augum því hann var fullur af gulli. Nánar tiltekið 260 gullpeningar sem eru taldir hafa verið notaðir á átjándu öld.

Að mati uppboðshússins Spink and Son er verðmæti myntanna sem nemur um 40 milljónum íslenskra króna. Í fréttatilkynningu frá uppboðshúsinu kemur fram að það sé frábært og óvænt að fjársjóðurinn hafi fundist á þessum stað. Þetta sé einn stærsti fornleifafundurinn frá þessum tíma.

Í fréttatilkynningunni segir að myntin hafi næstum örugglega tilheyrt Joseph og Sarah Fernley-Maisters sem gengu í hjónaband 1694. Þau tilheyrðu áhrifaríkri fjölskyldu sem átti fyrirtæki í námuvinnslu frá sautjándu öld fram á þá nítjándu.

Bank of England, enski seðlabankinn, var stofnaður 1694 og byrjaði að gefa út pappírsseðla á átjándu öld. Talið er að hjónin hafi ekki trúað á þetta nýja peningakerfi og því geymt myntina til öryggis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Í gær

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein