

En það eru væntanlega ekki margar afsakanir sem eru betri (eða ótrúlegri) en afsökun hinnar tvítugu Sam Lee sem skilaði prófi, sem hún þreytti, án þess að vera nálægt því búin að ljúka við að svara því.
Hún skýrði sjálf frá málinu á samfélagsmiðlum. Hún sagðist hafa verið að taka stærðfræðipróf en vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar var um heimapróf að ræða.
Á meðan hún var að leysa prófið fékk hún sér bát frá Subway, kjötbollubát, og þá fóru hlutirnir úrskeiðis.
Kjötbolla datt úr bátnum og lenti á lyklaborðinu. Því miður lenti hún á takka sem skilaði prófinu inn til kennarans þrátt fyrir að Sam væri ekki búin með stærsta hluta þess.
Það var ekki hægt að afturkalla þetta og því varð Sam að senda kennaranum tölvupóst og biðja um að fá að endurtaka prófið.
„Kæri prófessor Lastrapes. Ég glímdi við tæknileg vandamál í prófinu í dag. Eitthvað lenti á lyklaborðinu og varð það til þess að prófinu mínu var skilað inn þrátt fyrir að ég væri bara hálfnuð með það. Með „eitthvað“ á ég við kjötbollu sem féll á hörmulegan hátt á lyklaborðið. Ég skil mjög vel að kjötbolla, sem dettur, er engin afsökun fyrir lélegum árangri en er einhver möguleiki á að ég geti fengið að taka prófið aftur?“ skrifaði hún.
Það var hennar lán að kennarinn er mjög skilningsríkur. Hann svaraði henni og sagði að þetta væri ein undarlegasta afsökunin sem hann hefði nokkru sinni heyrt en hann teldi heldur ekki að þetta væri eitthvað sem hún hefði getað skáldað og því fengi hún annað tækifæri.