fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Smyglkokkurinn flutti 1,4 milljarða úr landi

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 13. október 2022 21:00

Krónurnar streymdu yfir Eyrarsund.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á þriðjudaginn var 29 ára kokkur frá Malmö í Svíþjóð dæmdur í þriggja ára fangelsi af dómara við undirrétt í Kaupmannahöfn. Hann játaði að hafa á fimm mánaða tímabili flutt 74 milljónir danskra króna, sem svara til 1,4 milljarða íslenskra króna, frá Danmörku til Svíþjóðar. Hann var fundinn sekur um peningaþvætti því hann vissi að peningarnir voru afrakstur ólöglegrar starfsemi.

Málið snýst um hóp manna, af sýrlenskum ættum, sem eru sakaðir um skipulagða glæpastarfsemi.

Það var þann 14. júní á síðasta ári sem maðurinn var handtekinn þegar hann var að flytja peninga til Svíþjóðar. Í leynihólfi í VW Golf bifreið fundust 2,8 milljónir danskra króna. Maðurinn sagði að fyrrum yfirmaður hans á kaffihúsi í Malmö hafi staðið á bak við þessa peningaflutninga, hann átti bílinn og hafði komið peningunum fyrir í honum.

Maðurinn fékk 10.000 sænskar krónur fyrir hverja ferð.

Ekstra Bladet segir að málið hafi komið upp í tengslum við sameiginlega aðgerð dönsku og sænsku lögreglunnar sem hafi gengið undir heitinu „Operation Aleppo“. Í aðgerðinni var starfsemi þjónustufyrirtækis afhjúpuð en hún var langt frá því að vera innan ramma laganna. Ekki var þó skýrt nánar frá því hvað það mál snýst um.

Saksóknari ákærði manninn upphaflega fyrir að hafa flutt 144 milljónir danskra króna á milli landanna en féllst á lækkun niður í 74 milljónir gegn játningu mannsins.

Ekki kom fram við réttarhöldin hvaðan peningarnir komu en fyrrum háttsettur lögreglumaður hafði áður sagt að líklega hafi þeirra verið aflað með fíkniefnaviðskiptum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Í gær

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum
Pressan
Í gær

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir
Pressan
Í gær

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar