fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Kona sökuð um að hafa afhöfðað vinkonu sína eftir rifrildi

Ritstjórn Pressunnar
Miðvikudaginn 12. október 2022 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski osteopatinnJemma Mitchell, hefur verið sökuð um að hafa myrt vinkonu sína eftir að þeim varð sundurorða.

Breskir saksóknarar halda því fram að Jemma hafi myrt vinkonu sína, Mee Kuen Chong, 67 ára að aldri, og því næst afhöfðað hana og komið líkamsleifunum fyrir í ferðatösku sem hún losaði sig við á strönd í suðurhluta Englands.

Kona sem var í fríi með fjölskyldu sinni fann líkamsleifar Mee í júní. „Þegar þau gengu til baka frá ströndinni að sumarhúsi sínu gerðu þau hrottalega uppgötvun; þau fundu höfuðlaust lík konu,“ sagði saksóknarinn Deanna Heer fyrir dómi.

Höfuð Mee fannst svo nokkrum dögum síðar í gróðri skammt frá staðnum þar sem líkið fannst.

Saksóknarar halda því fram að Mee hafi boðist til að lána Jemmu töluvert mikið af peningum svo sú síðarnefnda gæti ráðist í endurbætur á heimili sínu. Mee hafi þó fengið bakþanka og hætt við gjörninginn sem hafi svo haft áðurnefndar afleiðingar.

Jemma hefur neitað sök.

Saksóknarar hafa þó bent á þó nokkrar staðreyndir sem bendi til sektar Jemmu. Við húsleit hjá Jemmu fannst erfðaskrá í nafni Mee þar var Jemma útnefnd sem erfingi. Og eins þótti höfuð Mee hafa verið skorið af líkama hennar af einstakri nákvæmni en Jemma hafði í mannfræði námi í háskólanum tekið áfanga þar sem henni var kennt að kryfja mannslíkamann og hafi líka tekið sérstakan áfanga í anatómíu. Þar hafi hún skarað fram úr og fengið verðlaun fyrir frammistöðu sína.

Eins séu til upptökur úr eftirlitsmyndavélum sem sýni Jemmu yfirgefa heimili Mee skömmu eftir dánarstund hennar með tvær ferðatöskur sem hafi greinilega verið mjög þungar. Saksóknari heldur því fram að lík Mee hafi verið í töskunum.

Eins séu til upptökur sem sýni Jemmu aka í nágrenni við þann stað þar sem líkið fannst.

„Ákæruvaldið telur að hún hafi ráðist á og drepið hina látnu og svo flutt líkama hennar til Salcombe í þessari stóru bláu ferðatösku og reynt þar að losa sig við líkið í skóginum við Bennett veg.“

Nánar má lesa um málið hjá The Daily Mail

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu
Pressan
Í gær

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu